Erlent

Tsipras vill fara samningaleiðina

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Ný stjórn. Panos Kammenos varnarmálaráðherra, Gianni Dragasakis aðstoðarforsætisráðherra og Alexis Tsipras forsætisráðherra.
Ný stjórn. Panos Kammenos varnarmálaráðherra, Gianni Dragasakis aðstoðarforsætisráðherra og Alexis Tsipras forsætisráðherra. fréttablaðið/AP
„Við komum inn til þess að gera róttækar breytingar á því hvernig stefnumótun og stjórnsýslu er háttað í þessu landi,“ sagði Alexis Tsipras á fyrsta ríkisstjórnarfundi sínum í gær.

Hann segist ætla að standa við kosningaloforðin um að draga verulega úr lamandi niðurskurði og knýja fram miklar breytingar á samningum við Evrópusambandið (ESB) og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) um niðurgreiðslu skuldasúpunnar ógurlegu.

Í gær sagðist hann þó ætla að forðast átök við þessa lánardrottna, heldur fara frekar samningaleiðina. „Forgangsmál okkar er að ná nýjum samningum við samstarfsaðila okkar, reyna að komast að sanngjarnri, raunhæfri og hagkvæmri lausn fyrir báða þannig að landið komist út úr vítahring óhóflegra skulda og kreppu,“ sagði hann á ríkisstjórnarfundinum, samkvæmt frásögn Reuters-fréttastofunnar.

Janis Varúfakis, fjármálaráðherra nýju stjórnarinnar, segir samkomulagið við ESB, Evrópska seðlabankann og AGS hafa verið „eitruð mistök“, en stjórnin sé staðráðin í að breyta því hvernig tekist er á við kreppuna.

SYRIZA, vinstriflokkur Tsipras, vann stórsigur og hlaut 149 þingsæti á 300 manna þjóðþingi Grikklands. Strax daginn eftir tókst Tsipras að semja um stjórnarmyndun við lítinn flokk hægriþjóðernissinna.

Ekki leið þó á löngu áður en Tsipras lenti upp á kant við ESB. Á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins í Brussel í gær var samþykkt yfirlýsing, þar sem rússnesk stjórnvöld eru sögð bera ábyrgð á harðnandi átökum í austanverðri Úkraínu. Öll aðildarríki ESB stóðu að yfirlýsingunni, nema Grikkland þar sem nýja stjórnin var ósátt.

Afstöðu Grikkja má rekja til þess að Tsipras hyggst leita til Rússlands eftir stuðningi í komandi átökum við ESB, sem þó eiga að sögn Tsipras ekki að verða nein átök heldur samningaviðræður um gerbreytta skilmála.

Minnir þjóðverja á fortíðina. Strax daginn eftir kosningasigurinn lagði Tsipras blóm á minnismerki um fórnarlömb þýskra nasista í Aþenu.fréttablaðið/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×