Viðskipti erlent

Tsipras segir að viðræður haldi áfram eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Bjarki Ármannsson skrifar
Forsætisráðherra Grikklands segir það ekki satt að höfnun krafna lánardrottna myndi hafa í för með sér brottrekstur úr ESB.
Forsætisráðherra Grikklands segir það ekki satt að höfnun krafna lánardrottna myndi hafa í för með sér brottrekstur úr ESB. Vísir/AFP
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, segir að þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Grikkir eigi að gangast við kröfum lánardrottna sinna muni fara fram um helgina. Að henni lokinni muni Grikkland svo halda áfram samningaviðræðum við lánardrottna um betri kjör fyrir Grikki.

Í sjónvarpsávarpi fyrir stuttu hvatti Tsipras grísku þjóðina til að hafna kröfunum. Hann sagði það ekki satt að höfnun myndi hafa í för með sér brottrekstur Grikklands úr Evrópusambandinu. Þvert á móti verði gríska ríkið í betri samningsstöðu ef þjóðin hafnar kröfunum.

„Atkvæðagreiðslan á sunnudag hefur ekkert með veru okkar í evrusamstarfinu að gera,“ sagði Tsipras í ávarpi sínu. „Enginn getur dregið það í efa að við verðum þar áfram.“

Hann þakkaði jafnframt grísku þjóðinni fyrir ró sína á erfiðum tímum og sagðist ábyrgjast að launa- og lífeyrisgreiðslur myndu halda áfram að berast. Hann gagnrýndi Evrópusambandið og sagði það óásættanlegt að lþað hefði neytt gríska banka til að loka fyrir það eitt að leyfa þjóðinni að kjósa um kröfur lánadrottnanna.

Grikkjum tókst ekki að endurgreiða neyðarlán sitt frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir miðnætti í gær og varð þannig fyrsta þróaða hagkerfi sögunnar sem lendir á vanskilaskrá sjóðsins. Óvíst er um framhaldið en fjármálaráðherrar evruríkjanna munu funda síðar í dag um vandræði Grikkja.


Tengdar fréttir

Grikkir biðja um nýja neyðarhjálp

Vilja hjálp í tvö ár á meðan skuldir eru endurskipulagðar og unnið er að því að halda Grikkjum innan evrusamstarfsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×