Viðskipti erlent

Tsipras hvetur þjóð sína til að segja nei

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, áður en hann ávarpaði þjóð sína í gærkvöldi.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, áður en hann ávarpaði þjóð sína í gærkvöldi. vísir/epa
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hvatti þjóð sína til þess að segja nei við tilboði lánadrottna í þjóðaratkvæðagreiðslu næstkomandi sunnudag.

Í sjónvarpsávarpi sem hann flutti í gærkvöldi sagði hann að kysi þjóðin gegn frekari niðurskurði, eins og tilboð lánadrottna felur í sér, myndi það auðvelda grísku ríkisstjórninni að ná betri samningi vegna efnahagsástandsins í landinu.

Forsætisráðherrann bætti svo við að ef þjóðin samþykkti tilboðið þá myndi hann ekki leiða niðurskurðaraðgerðirnar, og ýjaði þannig að því að hann myndi segja af sér embætti.

Leiðtogar innan Evrópusambandsins hafa varað við því að ef Grikkir hafni tilboði lánadrottna þá muni það þýða útgöngu þeirra úr evrusamstarfinu. Tsipras hefur aftur á móti sagt að hann vilji ekki hætta í evrusamstarfinu.

 

Grikkland á að standa skil á 1,6 milljarða evra láni til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag en eins og kunnugt er getur ríkið ekki staðið við þá skuldbindingu. Þá nýtur landið ekki lengur þeirrar fjárhagslegu neyðaraðstoðar sem það samdi um í febrúar síðastliðnum gegn því að vinna að, og undirgangast, áætlun ásamt ESB um hvernig greiða má úr fjárhagsvandanum.

Grískir bankar hafa verið lokaðir síðan í gær og verða lokaðir alla vikuna. Grikkir geta tekið 60 evrur á dag út úr hraðbönkum, en það samsvarar um 8.800 krónum.

Óvissan vegna stöðunnar í landinu leiddi til mikils óróa á fjármálamörkuðum í gær en að því er fram kemur í frétt BBC þá réttu markaðir úr kútnum í morgun. Hlutabréfavísitölur hækkuðu meðal annars í Tókýó, Hong Kong og Seoul.


Tengdar fréttir

Grikkir stefna í þjóðargjaldþrot

Lánadrottnar líta á óvænta boðun til þjóðaratkvæðagreiðslu í Grikklandi sem brotthvarf þeirra frá viðræðum um nýja lánasamninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×