Sport

Trylltur fögnuður í farþegaþotu | Myndband

Það varð allt vitlaust um borð í flugvél Virgin America er San Francisco Giants tryggði sér meistaratitilinn í bandarísku hafnaboltadeildinni.

Farþegar í flugi félagsins frá Dallas til San Francisco gátu horft á leikinn í beinni útsendingu. Flugfreyjur útdeildu einnig Giants-klútum til farþeganna svo hægt væri að búa til stemningu í fluginu.

Allt ætlaði svo um koll að keyra er Giants tryggði sér 3-2 sigur á Kansas City Royals í oddaleiknum. Þriðji titill Giants á síðustu fimm árum.

Sjá má lætin í flugvélinni í myndbandinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×