Lífið

Trylltist þegar texti AmabAdamA var lesinn upp: „Djöfull ert þú eitthvað ruglaður, ert þú skemmdur?“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekki beint ánægð með þennan hrekk.
Ekki beint ánægð með þennan hrekk. vísir
Þeir Ríkharð Óskar Guðnason og Kjartan Atli Kjartansson hringdu í góðvinkonu FM957 í morgun og varð hún enn einu sinni fyrir barðinu á vel heppnuðum símahrekk.

Hrekkurinn gekk út á það að Kjartan hringdi í konuna og mátti bara lesa upp texta úr lagi með AmabAdamA og vissi konan ekki hvað á sig stóð veðrið þegar hóf lesturinn. Hann hélt áfram og áfram og skipti síðan yfir í lag með Emmsjé Gauta.

Konan gjörsamlega bilaðist og spurði hvort maðurinn í símanum væri eitthvað skemmdur. Hér að neðan má hlusta á símahrekkinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×