Lífið

Tryllt klúbbakvöld á Palóma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Omid 16B mun koma fram.
Omid 16B mun koma fram. vísir
Útvarpsþátturinn og viðburðarteymið Elements stendur fyrir trylltu klúbbakvöldi ásamt Geysir Records með tónlistarmanni og plötusnúð frá Bretlandi sem hefur skapað sér stóran sess í huga og hjörtum danstónlistarunnenda út um allan heim.

Omid Nourizadeh eða Omid 16b eins og hann er þekktur best sem mun koma fram á skemmtistaðnum Paloma laugardagskvöldið 28. maí næstkomandi. KGB spilar á neðri hæð.

Þeir sem muna eftir komu S.O.S. (Desyn Masiello, Demi og Omid 16b) hingað til lands á sínum tíma vita hvað er í vændum á Paloma. Omid 16b á eitt besta progressive lag samtímans að sögn Exos. Hér má kynna sér nánar um kvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×