Lífið

Tryllt hrekkjavökuförðun

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hrekkjavakan er í dag og verður henni eflaust fagnað alla helgina með alls kyns gleðskap.

Förðunarfræðingurinn Tara Brekkan Pétursdóttir hefur búið til kennslumyndband þar sem hún sýnir réttu handtökin við ansi ógnvekjandi hrekkjavökuförðun.

Tara útskrifaðist úr tísku- og ljósmyndaförðun frá Snyrtiakademíunni árið 2010 og hefur tekið að sér að farða fyrir ýmsa stóra viðburði, svo sem tískusýningar og Ungfrú Ísland. Þá tekur hún einnig að sér smærri verkefni og getur einnig gert einfaldar hárgreiðslur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×