Körfubolti

Tryggvi um ESPN-fréttina og alla athyglina: Ég er bara rólegur yfir þessu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason er á einu augabragði orðinn heitasta nafnið í íslenskum körfubolta og stærstu fjölmiðlarnir í Bandaríkjum eru farnir að orða miðherjann við NBA-deildina.

Tryggvi Snær er nýkominn heim eftir Evrópumót tuttugu ára liða þar sem hann var valinn í lið mótsins. Hann fær ekki mikla hvíld á milli landsliðsverkefna því nú er strákurinn að detta inn í undirbúningi íslenska karlalandsliðsins fyrir Evrópumótið í körfubolta. Riðill Íslands fer fram í Helsinki í Finnlandi og hefst í lok ágúst.

Hörður Magnússon hitti Tryggva Snæ og landsliðsþjálfarann Craig Pedersen í dag en framundan eru tveir æfingalandsleikir við Belgíu hér á landi. Það verða einu leikirnir sem íslenska landsliðið spilar á Íslandi fyrir Evrópumótið.

ESPN birti nýlega langa og ítarlega grein um Tryggva og velti fyrir sér möguleikum sveitastráksins frá Suður-Þingeyjarsýslu á að komast í NBA-deildina í framtíðinni.

„Það er alltaf skemmtilegt að fá athyglina og ég talaði við þennan karl eftir Svíaleikinn. Hann sagði hvað vantaði í leikinn minn og það var margt sem ég veit af og er að vinna í. Það er samt gott að sjá önnur sjónarmið. Ég held samt bara áfram á sama róli og læt þetta ekki hafa svo mikil áhrif á mig,“ sagði Tryggvi.

„Ég reyni að halda mér niðri á jörðinni eins lengi og ég get. Ég er bara rólegur yfir þessu og leiði þetta bara framhjá mér,“ sagði Tryggvi.

Tryggvi fær frí frá verkefnum A-landsliðsins þessa vikuna. Hann verður á æfingunum en verður ekki í miklum átökum á þessum æfingum. „Ég tek þetta létt á æfingunum í örfáa daga. Ég mun reyna að ná kerfunum og vinna þetta upp sem ég er búinn að missa af. Það er fínt að taka því rólega í nokkra daga og taka síðan allt á fullu eftir það,“ sagði Tryggvi.

Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen er virkilega ánægður með líkamlegt ástand manna á þessum tímapunkti.

„Leikmennirnir komu aftur til æfinga í mjög góðu formi sem gerir það að verkum að við höfum getað verið á fullum krafti frá fyrstu æfingu. Við höfum því náð að gera mikið á þessum æfingum sem eru búnar. Þetta er búið að vera framúrskarandi,“ sagði Craig Pedersen.

Það má sjá alla fréttina hjá Herði með því að smella á spilarann hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×