MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 01:00

Harðlínumenn láta til sín taka

FRÉTTIR

Tryggja meirihluta Rammaáætlunar

Fréttablaðið Innlent 23. mars 2012 06:30
urriðafoss Fyrirhuguð virkjun við Urriðafoss fer í biðflokk ásamt tveimur öðrum virkjunum í Þjórsá.fréttablaðið/anton
urriðafoss Fyrirhuguð virkjun við Urriðafoss fer í biðflokk ásamt tveimur öðrum virkjunum í Þjórsá.fréttablaðið/anton
Unnið er að því að tryggja þingmeirihluta fyrir Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Áætlunin hefur verið afgreidd úr ríkisstjórn og er nú í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tillögu verkefnisstjórnar er breytt og virkjanakostir færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Unnið er að því að tryggja meirihluta málsins.

„Rammaáætlun er á lokametrunum," sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í byrjun febrúar. Þá var umsagnarferli um þingsályktunartillögu um áætlunina lokið og tillagan sjálf hafði verið boðuð í þinglega meðferð í janúar. Lokametrarnir virðast nokkuð langir, því tillagan hefur ekki enn litið dagsins ljós.

Ástæða seinkunarinnar er tvíþætt. Í fyrsta lagi hefur verið kallað eftir frekari gögnum varðandi ýmsa virkjunarkosti, nokkuð sem að var stefnt í ferlinu öllu. Alls bárust 225 umsagnir um málið.
Ekki síður mikilvæg skýring á töfinni er að reynt hefur verið að tryggja málinu meirihluta áður en það kemur fyrir þingið. Það hefur reynst þrautin þyngri.


Tryggja málið
Alls er tekin afstaða til 66 virkjanakosta í þessum öðrum áfanga áætlunarinnar. Þeir eru flokkaðir í þrjá flokka: verndar-, nýtingar- og biðflokk. Reynt hefur verið að tryggja sátt um þessa skiptingu áður en málið fer fyrir Alþingi á ný.

Ef það tekst ekki eru líkur á því að tekist verði á um einstaka kosti og það gæti hleypt málinu í uppnám. Eigi að klára áætlunina á þessu þingi er ljóst að trauðla gengur að deila um hvern og einn þessara 66 kosta. Þess vegna hefur verið reynt að ná sátt í stjórnarmeirihlutanum um málið í heild sinni.
Líkt og sést hér til hliðar hefur þegar verið boðuð tillaga um breytingu á einstökum kostum. Ríkisstjórnin hefur því lagt áherslu á sátt um málið fyrir þinglega meðferð.

Þar hafa tekist á sjónarmið þeirra sem vilja aukna verndun í þágu náttúrunnar og þeirra sem vilja aukna nýtingu og beita rökum atvinnusköpunar.


Þjórsá í biðflokk
Ríkisstjórnin hefur afgreitt Rammaáætlunina og hún er nú til kynningar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Gerðar eru nokkrar breytingar á tillögu verkefnastjórnarinnar.
Þar ber hæst að allir þrír virkjanakostirnir í Þjórsá eru færðir úr nýtingarflokki og yfir í biðflokk, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þær herma að ætlunin sé að það verði um skamma hríð á meðan frekari gagna er aflað.

Ljóst er að röksemdir um aðra nýtingu, til dæmis hugmyndir Orra Vigfússonar stjórnarformanns NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna, um að gera ána að umfangsmikilli laxveiðiá, hafa mikið að segja í því ferli.
Þá er, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, einnig fyrirhugað að flytja eftirfarandi svæði á hálendinu í biðflokk: Hágöngur I og II og Strokköldu. Þá mun einnig vera fyrirhugað að Seltún, hluti Sveifluáss, fari í þann flokk, en það hefur ekki áhrif á nýtingu, þar sem ekki eru auðlindir á því litla svæði.
Einnig hefur verið deilt um Reykjanesið og þær raddir gerst háværar að verndun þar verði umfangsmeiri. Samkvæmt þessum tillögum munu svæði þar verða nýtt til virkjana. Með nokkurri einföldun má því segja að virkjað verði á Reykjanesi en beðið með ákvörðun um virkjanir í Þjórsá.


Þrettán ára ferli
Vinna við Rammaáætlun hófst vorið 1999 og hefur því staðið yfir í þrettán ár. Kostnaður við vinnuna nemur rúmum milljarði króna. Líkt og áður segir hefur áætlunin verið lengi á lokametrunum, en nú lítur út fyrir að hún fari að sjá dagsins ljós.

Ætli ríkisstjórnin sér að klára málið á yfirstandandi þingi verður að leggja það fram fyrir 1. apríl, en þá rennur frestur fyrir ný þingmál út. Að öðrum kosti verður stjórnin að leita afbrigða til að málið komist á dagskrá og líkt og sást í tillögu um endurskoðun stjórnarskrár er ekki á vísan að róa í þeim efnum.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 21. maí 2013 23:38

Segist alltaf hafa trúað því að sonur sinn færi í pólitík

"Ég treysti honum mjög vel að sinna þessu af alúð, festu og sanngirni,“ sagði Gunnlaugur M. Sigmundsson, faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formann Framsóknarflokksins, spurður hvernig honum ... Meira
Innlent 21. maí 2013 23:18

Framsóknarflokkurinn byrjar með fjóra ráðherra

Framsóknarflokkurinn mun byrja með fjóra ráðherra samkvæmt heimildum fréttastofu. Meira
Innlent 21. maí 2013 23:05

Verðandi forsætisráðherra: Gengið í að leysa óleyst vandamál

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra, sagði í samtali við fréttastofu að ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks gengi annarsvegar út að... Meira
Innlent 21. maí 2013 22:47

Hanna Birna gerir fastlega ráð fyrir ráðherraembætti

Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir fund flokksráðsins fyrr í kvöld hafa verið afar góðan. Spurð hvað felist í nýjum stjórnarsáttmála sem var samþykktur á fundinum, s... Meira
Innlent 21. maí 2013 22:23

Ráðherraskipan ákveðin annað kvöld - ekkert gefið í þeim efnum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ráðherraskipan innan flokksins verði ákveðin á þingflokksfundi annað kvöld. Meira
Innlent 21. maí 2013 21:09

Sigmundur Davíð verður forsætisráðherra

Bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur fá fimm ráðuneyti. Meira
Innlent 21. maí 2013 20:42

Aðgerðarhópur gegn ESB fagnar myndun „fullveldisstjórnar“

Fundir Flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll og Miðstjórn Framsóknarflokksins í Rúgbrauðsgerðinni, eru byrjaðir, en þar verður nýr stjórnarsáttmáli kynntur fyrir félagsmönnum og atkvæði greidd um ... Meira
Innlent 21. maí 2013 20:07

Ný ríkisstjórn kynnt á Laugarvatni á morgun

Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa boðið til blaðamannafundar á Laugarvatni klukkan 11:15 á morgun. Á fundinum munu formennirnir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson un... Meira
Innlent 21. maí 2013 19:48

Þarf að auka aga og skerpa á vinnubrögðum samningsaðila

Breytinga er þörf á því hvernig staðið er að gerð kjarasamninga og nauðsynlegt er að auka aga og skerpa vinnubrögð samningsaðila. Þetta er niðurstaða vinnuhóps samtaka launafólks og vinnuveitenda sem ... Meira
Innlent 21. maí 2013 19:30

Ráðherra segist fara bil beggja

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra stækkaði í dag bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa. Forkastanleg vinnubrögð, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks, enda sé verið að taka burt svæði þar sem áttatíu... Meira
Innlent 21. maí 2013 19:12

Hart deilt um vegaframkvæmdir við Gálgahraun

Gagnrýnendur færslu Álftanesvegar um Gálgahraun segja að ekki hafi verið farið að tilmælum innanríkisráðherra sem vildi að forsendur framkvæmdarinnar yrðu endurskoðaðar. Bæjarstjórn Garðabæjar og Vega... Meira
Innlent 21. maí 2013 18:26

Ráðuneytum verður fjölgað - stjórnarsáttmáli kynntur í kvöld

Bæði ráðuneytum og ráðherrum verður fjölgað með nýrri ríkisstjórn. Stjórnarsáttmáli Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tekur meðal annars á skuldamálum heimilanna. Hann verður kynntur flokksmönnum í kvö... Meira
Innlent 21. maí 2013 17:46

Nauðgaði félaga sínum

Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að nauðga vini sínum. Hinn dæmdi átti afmæli þegar brotið átti sér stað í desember árið 2... Meira
Innlent 21. maí 2013 16:36

Íslenski dansflokkurinn og sinfónían saman í fyrsta sinn í Eldborg

Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands fara í eina sæng á Listahátíð í Reykjavík um helgina. Þar munu þau flytja tvö af frægustu danstónverkum tónskáldsins Igors Stravinskis á Eldborgar... Meira
Innlent 21. maí 2013 16:20

Forsetinn boðar Sigmund Davíð á fund

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun eiga fund á morgun með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, þar sem væntanlega verður farið yfir niðurstöður stjórnarmyndunarviðræðn... Meira
Innlent 21. maí 2013 16:12

Óskað eftir vitnum að umferðarslysi

Ekið á gangandi vegfaranda í Skipholti. Meira
Innlent 21. maí 2013 16:05

Griðland hvala stækkað

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að stækka verulega griðasvæði Faxaflóa þannig að svæðið nái frá Garðskagavita og í beina línu að Skógarnesi. Þetta kemur fram á vef atvinnuve... Meira
Innlent 21. maí 2013 15:52

Helgi Hjörvar kjörinn formaður þingflokks

Helgi Hjörvar, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður, var kjörinn formaður þingflokks Samfylkingarinnar á þingflokksfundi í dag. Í tilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að með Helga voru kosin í... Meira
Innlent 21. maí 2013 15:31

Ofurmenni hlaupa upp Esjuna

Esja Ultra ofurhlaupið verður haldið 22. júní næstkomandi. Boðið verður upp á fjórar vegalengdir þar sem fólk getur hlaupið 1, 2, 5 eða 10 hringi upp að Steini innan tímamarka. Þá verða einnig þriggj... Meira
Innlent 21. maí 2013 15:01

Karl ánægður með komandi ríkisstjórn

"Ég var mjög ánægður með það sem ég heyrði frá honum,“ segir Karl Garðarsson, verðandi þingmaður Framsóknarflokksins. Meira
Innlent 21. maí 2013 14:27

Útkall vegna slæms mataræðis eiginmanns

Lögregla leysti ágreining hjóna á Suðurnesjunum. Meira
Innlent 21. maí 2013 13:43

Þau sátu í íslensku dómnefndinni

Sérstök dómnefnd hefur helmings vægi til móts við símakosningu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Dómnefndin er því mikill úrslitavaldur í því hvernig úrslitin ráðast. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:55

„Er fólk ekki betur innrætt en þetta?“

Bubba Morthens blöskrar umræðuhefðin í athugasemdakerfunum. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:45

Uppgjör Eurovision

Ísland gaf Danmörku fullt hús stiga í Eurovision en fékk aðeins 1 frá þeim. Íslenska lagið fékk flest stig frá Þýskalandi, 8 talsins. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:21

Vinkona Eyglóar komst af í hamförunum í Oklahoma

Eygló Harðardóttir alþingismaður var skiptinemi í Oklahoma fyrir rúmum áratug, og þekkir vel til óvissu og hræðslu við hvirfilbylina sem fara þar í gegn ár hvert á vorin. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Tryggja meirihluta Rammaáætlunar
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000