Bíó og sjónvarp

Tryggðu sér réttinn á hrollinum The Witch

Anya Taylor-Joy fer með aðalhlutverkið í hryllingsmyndinni.
Anya Taylor-Joy fer með aðalhlutverkið í hryllingsmyndinni.
Fyrirtækin A24 og DirecTV hafa tryggt sér dreifingarréttinn í Bandaríkjunum á hryllingsmyndinni The Witch. Samningurinn var innsiglaður á kvikmyndahátíðinni Sundance sem stendur yfir um þessar mundir, samkvæmt bíósíðunni The Wrap.

Rétturinn kostaði ríflega 1,5 milljónir Bandaríkjadala, eða um tvö hundruð milljónir króna.

A24 og DirecTV eru í samstarfi um að sýna kvikmyndir eingöngu á DirecTV í þrjátíu daga áður en þær fara í bíó. Viðskiptavinir eru tuttugu milljónir.

„The Witch er ein mest heillandi og best gerða fyrsta mynd leikstjóra sem ég hef nokkru sinni séð,“ sögðu dreifingaraðilarnir í yfirlýsingu en leikstjóri er Robert Eggers. Anya Taylor-Joy leikur aðalhlutverkið.

The Witch gerist í bæ á Nýja-Englandi í Bandaríkjunum á 15. öld. Hún fjallar um hjón sem grunar að elsta dóttir þeirra sé norn eftir að nýfæddur sonur þeirra hverfur.

Engar stjörnur leika í myndinni og spennan byggist upp hægt og rólega. Því er óvíst hvernig henni mun ganga í miðasölunni vestanhafs en hún hefur víða fengið góða dóma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×