Erlent

Trump ýjar að því að draga úr fjármagni til Berkeley vegna mótmæla

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá mótmælunum í gær.
Frá mótmælunum í gær. Vísir/AFP
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ýjað að því að Berkeley háskólinn muni ekki fá opinbert fé vegna mótmæla við skólann. Forsvarsmenn skólans, sem er í Kaliforníu, hættu við ræðu Milo Yiannopoulos, ritstjóra Breitbart fjölmiðilsins sem Stephen Bannon stofnaði auk annarra, eftir mótmæli fjölmargra nemenda skólans.

Rúður voru brotnar í mótmælunum og minnst einn eldur var kveiktur en samkvæmt AP fréttaveitunni hefur smáum hópi grímuklæddra mótmælenda verið kennt um það. Enginn hefur verið handtekinn og enginn er slasaður.

Áður en til láta kom hafði stór hópur friðsamra mótmælenda staðið fyrir utan ráðstefnusalinn þar sem Yiannopoulos átti að flytja ræðu í nokkra klukkutíma.

Yiannopoulos er sjálfyfirlýst net-tröll og hann hefur lengi verið gagnrýndur fyrir rasisma, kvennhatur, þjóðernishyggju og hatur á múslimum. Þá var hann rekinn af Twitter fyrir að leiða og ýta undir áreiti í garð leikkonunnar og grínistans Leslie Jones.

Þá er Yiannopoulos yfirlýstur stuðningsmaður Donald Trump. Forsetinn tjáði sig um málið á Twitter nú í dag.

Þar segir hann að ef Berkeley leyfi ekki málfrelsi og styðji við „ofbeldi gegn saklausu fólki“ sé spurning um að koma í veg fyrir að skólinn fái opinbert fé.

Það var ekki háskólinn sjálfur sem skipulagði ræðu Yiannopoulos, heldur var það nemendasamtök repúblikana. Háskólinn mótmælti því að hætt yrði við viðburðinn.

Nemendasamtök repúblikana segja að „glæpamenn og hrottar“ hafi brotið á stjórnarskrárvörðum rétti sínum til málfrelsis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×