Erlent

Trump um nýjustu ásakanirnar: „Ég er fórnarlamb“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Donald Trump
Donald Trump Vísir/AFP
Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, segist vera fórnarlamb einnar stærstu pólítísku ófrægingarherferðar í sögu Bandaríkjanna. Fjöldi kvenna hefur stigið fram og sakað hann um kynferðislega áreitni, kynferðisbrot eða óviðeigandi hegðun í sinn garð.

„Ég er fórnarlamb einnar stærstu pólítísku ófrægingarherferðar í sögu Bandaríkjanna,“ sagði Trump á kosningafundi í Charlotte í Norður-Karólína ríki. „Þau eru að reyna að eyðileggja fyrir einni mestu fjöldahreyfingu í sögu Bandaríkjanna.“

Minnst ellefu konur hafa stigið fram með ásakanir á hendur Trump sem segir konurnar allar vera að ljúga. Trump fór mikinn á kosningafundinum í gær og ræddi um ásakanirnar, þvert gegn ráðum ráðgjafa sinna sem vilja að hann tali um stefnumál sín.

„Fólkið mitt segir: Ekki tala um þetta, talaðu um störf, talaðu um efnahaginn. Ég verð samt að fá að tala um þetta vegna þess að ég verð að véfengja þessar sögusagnir,“ sagði Trump.

Býr sig undir að tapa segja stjórnmálaskýrendur

Í gær stigu tvær konur fram með nýjar ásakanir á hendur Trump. Summer Zervos, fyrrum keppandi í raunveruleikaþætti Trump, The Apprentice, og Kristin Anderson. Þær segja báðar að Trump hafi káfað á sér.

Trump segir segir að ásakanirnar séu hluti af stærra samsæri ráðandi aðila sem vilji gera allt til þess að koma í veg fyrir að Trump verði kosinn forseti. Þessir aðilar séu hinir stóru fjölmiðlar í Bandaríkjunum og fulltrúar sérhagsmuna.

„Það er verið að hagræða úrslitum. Þetta er ein stór hagræðing og ljótar lygar,“ sagði Trump. Fylgi hans hefur tekið væna dýfu í kjölfar ásakananna og minnka líkurnar á því að Trump verði næsti forseti dag frá degi.

Stjórnmálaskýrendur ytra segja sumir hverjir að með þessu tali sé Trump að undirbúa tap sitt. Hann verði þá með afsökun á reiðum höndum í nóvember næstkomandi, þegar gengið verður til kosninga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×