Erlent

Trump telur Rússa líklega bera ábyrgð á tölvuárásum fyrir kosningarnar

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Í skýrslunni kemur einnig fram að Rússar hafi í fórum sínum upplýsingar sem gætu svert mannorð Trumps og komið upp um ýmis vafasöm athæfi.
Í skýrslunni kemur einnig fram að Rússar hafi í fórum sínum upplýsingar sem gætu svert mannorð Trumps og komið upp um ýmis vafasöm athæfi. Vísir/Getty
Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna hélt sinn fyrsta blaðamannafund í dag síðan hann var kjörinn forseti Bandaríkjanna. Á fundinum var meðal annars farið yfir skýrslu, sem nýlega kom fram, þar sem rússnesk stjórnvöld eru sögð bera ábyrgð á tölvuárusum sem demókrataflokkurinn varð fyrir rétt fyrir forsetakosningarnar. Trump sagði að Rússar bæru líklega ábyrgð á þessum tölvuárásum og er þetta í fyrsta sinn sem hann viðurkennir það. CNN greinir frá.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Michael Cohen, lögfræðingur Trumps, hafi í ágúst eða september 2016 heimsótt Kremlin og rætt þar um mögulegar tölvuárásir gegn andstæðingum Trumps. Hann neitar þó öllum sökum og segir allan fréttaflutning þess efnis vera uppsuna.

Sýna Trump í vafasömu ljósi

Í skýrslunni kemur einnig fram að Rússar hafi í fórum sínum upplýsingar sem gætu svert mannorð Trumps og komið upp um ýmis vafasöm athæfi. Mest allur tími blaðamannafundarins fór í að ræða um þessar ásakanir þar sem Trump er sakaður um glæfralega háttsemi í fjármálum sem og að hafa verið í samskiptum við vændiskonur.

Trump segir þessar ásakanir sem komi fram í skýrslunni um hans persónulegu málefni vera sett fram af veiku fólki og séu uppspuni. Hann þakkaði þeim fréttaveitum sem hefðu ekki birt skýrsluna í heild sinni og gagnrýndi einnig Buzzfeed og CNN sem birtu skýrsluna. Trump neitaði meðal annars að svara spurningu frá fréttamanni CNN og sagði þá segja fréttir sem væru uppspuni.

Trump taldi þó að Rússar hefðu átt hlut í tölvuárásunum á demókrataflokkinn þar sem meðal annars var brotist inn í tölvupósta Hillary Clinton. Trump bendir þó að fleiri aðilar gætu hafa átt hlut að máli. Talsmaður Pútíns ,Dmitry Perskov, segir að ekki sé neinn fótur fyrir þessum ásökunum sem komi fram í skýrslunni um að Rússa búi yfir mannorðsskemmandi upplýsingum um Trump. Hann segir ásakanirnar settar fram í þeirri von að spilla sambandinu enn frekar á milli landanna tveggja.

Afturkallar Obamacare og forðast hagsmunaárekstra

Trump segir að hann muni ekki hafa nein afskipti af fyrirtækjum í hans eigu á meðan á forsetatíð hans stendur. Hann muni láta það alfarið í hendur tveggja sona sinna og ítrekar að hann muni ekki ræða málefni fyrirtækjanna við þá. Einn af lögfræðingum Trumps, Sheri Dillon, virðist vera að vinna í því að einangra Trump algjörlega frá fyrirtækjunum þannig að engar upplýsingar tengist honum á nokkurn hátt. Það sé gert til að sporna við hagsmunaárekstrum.

Þannig hafi Trump lagt upp með að vera forseti þjóðar sinnar og sinna málefnum hennar einungis. Einnig kom fram að Trump hefði meðal annars gengið í skugga um að hætt verði við alla nýja viðskiptasamninga sem hafa verið í undirbúningi og hafa ekki verið skjalfestir.

Trump ætlar jafnframt að afturkalla Obamacare og endurnýja hana á sama tíma. Hann leggur áherslu á að þetta mundi einungis taka tvo daga eða viku.  Jafnframt sagðist hann ætla að byggja vegginn á milli Mexíkó og Bandaríkjanna og sagði að Mexíkó myndi greiða fyrir múrinn að mestu leyti. 

Sjá má blaðamannafundinn í heild sinni hér að neðan


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×