Erlent

Trump skipar í þrjár mikilvægar stöður

Samúel Karl Ólason skrifar
Michael Flynn, Jeff Sessions og Mike Pompeo.
Michael Flynn, Jeff Sessions og Mike Pompeo. Vísir
Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa skipað þrjá menn í mikilvægar stöður í ríkisstjórn sinni. Um er að ræða stöður dómsmálaráðherra, þjóðaröryggisráðgjafa og yfirmann CIA.

Samkvæmt heimildum fjölmiðla ytra verður öldungadeildarþingmaðurinn Jeff Sessions dómsmálaráðherra. Þingmaðurinn Mike Pompeo verður yfirmaður CIA og Michael Flynn verður þjóðaröryggisráðgjafi.

Sessions hefur staðið dyggilega við bakið á Trump í kosningabaráttunni, en hann hefur einnig látið falla umdeild ummæli um innflytjendur og hefur verið gagnrýndur fyrir það. Hann er mótfallinn því að ólöglegum innflytjendum verði boðin leið að ríkisborgararrétti og hefur tekið vel undir hugmyndir Trump að byggja vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Ted Cruz, mótframbjóðandi Trump, hafði verið orðaður við stöðuna en samkvæmt Bloomberg hringdi aðstoðarmaður Trump í Cruz og sagði honum frá því að Sessions yrði skipaður í stöðuna.

Mike Pompeo er þingmaður frá Kansas og fyrrum hermaður. Hann er íhaldssamur Repúblikani og harður andstæðingur kjarnorkusamkomulagsins við Íran. Pompeo situr í leyniþjónustunefnd þingsins og var virkur í rannsókn þingsins á árásinni í Benghazi og gagnrýndi hann Hillary Clinton harðlega.

Michael Flynn er fyrrum hershöfðingi og einn af nánustu bandamönnum Donald Trump. Hann er sagður segja hlutina tæpitungulaust en var rekinn frá leyniþjónustunni DIA árið 2014 eftir að hann reyndi að hrista upp í stofnuninni og draga úr skriffinsku.

Samkvæmt Reuters hefur honum verið lýst sem gáfuðum manni með takmarkaða stjórnunarhæfileika.

Hann var harðlega gagnrýndur þegar hann dreifði ráðleggingum meðal starfsmanna DIA um klæðnað þeirra. Þar var stungið upp á viðmiðunarreglum fyrir karlkyns og kvenkyns starfsmenn og fólk var hvatt til að hafa líkamstýpu sína í huga við fataval.

Þá voru konur hvattar til þess að nota farða þar sem farði gerði konur „meira aðlaðandi“.

Demókratinn Adam Schiff, sem er æðsti þingmaður flokksins í leyniþjónustunefnd þingsins, segir að Trump þurfi ráðgjafa sem hafi betri skapgerð en Flynn. Einhvern sem geti dregið úr hvatvísi Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×