Innlent

Trump segir Rússa aðstoða Norður Kóreumenn

Birgir Olgeirsson skrifar
Trump montaði sig af hárri einkunn sem hann fékk í vitsmunaprófi sem læknir Hvíta hússins lagði fyrir hann.
Trump montaði sig af hárri einkunn sem hann fékk í vitsmunaprófi sem læknir Hvíta hússins lagði fyrir hann. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, heldur því fram að rússnesk yfirvöld aðstoði yfirvöld í Norður Kóreu við að komast hjá alþjóðlegum þvingunum og að Norður Kóreumenn færist nær því á hverjum degi að geta skotið flugskeyti á Bandaríkin.

„Rússar eru ekki að hjálpa okkur með Norður Kóreu,“ sagði Trump í viðtali sem hann veitti fréttaveitu Reuters í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum.

Vill hann meina að á meðan yfirvöld í Kína hafa sýnt bandarískum yfirvöldum samstöðu vegna Norður Kóreu þá grafi rússnesk stjórnvöld undan því starfi.

Yfirvöld í Kína og Rússlandi skrifuðu bæði undir þvinganir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á hendur Norður Kóreu í fyrra. Reuters segir rússneska sendiráðið ekki hafa svarað fyrirspurn vegna ummæla Trumps.

Um er að ræða 53 mínútna langt viðtal sem forsetinn veitti með ískalda Diet Coke-dós á skrifborði sínu sem hann teygði sig reglulega eftir.

Viðtalið fór fram á skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu þar sem hann hafði Diet Coke-dós við höndina.Vísir/Epa
Trump sagðist einnig vera að íhuga háa sekt vegna rannsóknar á meintum hugverkaþjófnaði Kínverja, hann sagðist hafa misst allt traust á samningamanni Demókrataflokksins þegar kemur að málefnum innflytjenda á bandaríska þinginu og neitaði að skýra betur mál sitt þegar kemur að fréttaflutningi af skítaholu ummælum hans sem ollu mikilli hneykslan.

Trump sagðist vera efins um að viðræður á milli hans og leiðtoga Norður Kóreu, Kim Jong Un, myndu skila árangri.

„Ég myndi setjast niður með honum en er ekki viss um að það myndi leysa vandamálið,“ sagði Trump og bætti við að viðræður fyrrverandi forseta Bandaríkjanna við Norður Kóreumenn hefðu ekki skilað árangri þegar kemur að áætlunum þeirra um að koma sér upp kjarnorkuvopnabúri.

Styttur af Kim Jong Un, Vladimir Putin forseta Rússlands og Donald Trump. Ljóst er að ummæli Trumps um aðstoð Rússa við Norður Kóreumenn muni valda einhverjum titringi í alþjóðasamfélaginu.Vísir/Getty
Hann sagði að Bill ClintonGeorge WBush og Barack Obama hefði öllum mistekist það. „Ætli þeir hafi ekki allir áttað sig á því að þetta yrði verk fyrir forseta sem fengi hæstu einkunn á prófunum“ sagði hann og vísaði þar til fregna af árangri hans í mati sem læknir Hvíta hússins lagði á vitsmuni hans. 

Þar fékk Trump þrjátíu stig af þrjátíu mögulegum í svokölluðu Montreal Cognitive Assessment-prófi sem er notað til að kanna hvort einstaklingar glími við minniháttar vitsmunalega skerðingu eða Alzheimer.

Trump sagðist vona að deilur Bandaríkjamanna og Norður Kóreumanna leysist friðsamlega. „En það er mögulegt að svo verði ekki,“ sagði hann. 


Tengdar fréttir

Líkti Trump við Stalín

Þingmaðurinn Jeff Flake sagði árásir Trump á fjölmiðla vera skömmustulegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×