Erlent

Trump segir Obama hreina hörmung

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Donald Trump kom fram á kosningafundi á mánudag, enda heldur kosningabaráttan áfram þangað til í nóvember.
Donald Trump kom fram á kosningafundi á mánudag, enda heldur kosningabaráttan áfram þangað til í nóvember. Nordicphotos/AFP
Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, segir valdatíð Baracks Obama Bandaríkjaforseta hafa verið hreina hörmung og í raun versta forseta í sögu Bandaríkjanna. Obama hafi bæði verið veikburða og gagnslaus.

Þetta sagði Trump í viðtali við Fox fréttastofuna, í kjölfar ummæla Obama, sem sagði Trump óhæfan til að gegna forsetaembættinu. Þá sagði Obama það sæta furðu að Repúblikanaflokkurinn hafi enn ekki látið af stuðningi við Trump.

Ýmsir þungavigtarmenn innan flokksins hafa þó gagnrýnt Trump og neitað honum um stuðning sinn. Þeirra á meðal eru Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og þingmaður repúblikana, og John McCain, öldungadeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi repúblikanaflokksins. Trump hefur hins vegar svarað í sömu mynt og segist ekki ætla að styðja þá í næstu þingkosningum, sem fara fram í nóvember, en Ryan og McCain ætla báðir að fara fram.

Þá hefur gagnrýni á hendur Trump komið víðar að, en Francois Hollande Frakklandsforseti sagði í gær að fari svo að Trump beri sigur úr býtum, muni það hafa áhrif á heiminn allan. Bætti hann því við að Trump valdi sér ógleði.

Fylgissveiflur á milli frambjóðandanna tveggja, Trump og Hillary Clinton, hafa verið töluverðar að undanförnu. Clinton er þó á hraðri uppleið í könnunum, nú að loknu landsþingi flokkanna tveggja. Stuðningur við Trump minnkaði eftir landsþing repúblikanaflokksins en þar munar líklega mest um þegar hann fór að gera lítið úr fjölskyldu hermanns sem féll í Íraksstríðinu árið 2004. Fjölskyldan er íslamskrar trúar og hafa orð Trump í garð hennar verið mikið í fréttum vestanhafs síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×