Erlent

Trump sakar fjölmiðla um blint hatur

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Trump undirritaði lagafrumvarp sem léttir af olíufyrirtækjum þeirri kvöð að þurfa að gera grein fyrir peningum sem þau greiða til erlendra stjórnvalda.
Trump undirritaði lagafrumvarp sem léttir af olíufyrirtækjum þeirri kvöð að þurfa að gera grein fyrir peningum sem þau greiða til erlendra stjórnvalda. vísir/epa
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarísku leyniþjónustuna leka upplýsingum eins og hún sé að dreifa sælgæti. Það sé raunverulega hneykslið.

Þá segir hann fréttir af tengslum sínum og samstarfsmanna sinna við Rússa vera tómt kjaftæði, sem hafi þann eina tilgang að draga athyglina frá öllum þeim mistökum sem Hillary Clinton gerði í kosningabaráttunni.

Þetta segir hann á Twitter-síðu sinni í gær, en hann hefur verið býsna iðinn við að nota þann vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri.

Þá sakaði hann fjölmiðla um að velta sér upp úr samsæriskenningum. Þeir væru haldnir blindu hatri á sér. Þar tilgreindi hann sérstaklega sjónvarpsstöðvarnar MSNBC og CNN ásamt stórblöðunum New York Times og Washington Post. Hins vegar væri Fox-sjónvarpsstöðin frábær.

Þessi gusa á Twitter virðist vera viðbrögð hans við skrifum New York Times um að starfsfólk á vegum Trumps hafi átt í miklum samskiptum við háttsetta rússneska leyniþjónustumenn meðan kosningabaráttan stóð enn yfir.

Blaðið sagðist hafa heimildir fyrir þessu frá bæði lögreglu og leyniþjónustu. Þetta hefði komið í ljós við rannsókn alríkislögreglunnar FBI á því hvort Rússar hefðu brotist inn í tölvukerfi Demókrataflokksins og lekið þaðan upplýsingum í þeim tilgangi að veikja stöðu Clinton í kosningabaráttunni.

Rannsóknin hefði hins vegar ekki enn leitt í ljós að samstarfsmenn Trumps hefðu beinlínis átt í samvinnu við Rússa um þessar netnjósnir.

Eitt stærsta áfallið sem hin nýja stjórn Trumps hefur orðið fyrir á fyrstu vikunum var afsögn þjóðaröryggisráðgjafans Michaels Flynn, sem varð uppvís að því að hafa logið að Mike Pence varaforseta um samtal sitt við sendiherra Rússlands.

Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa nú tekið undir kröfur um að hefja þurfi ítarlega rannsókn á tengslum Trumps við Rússa.

Þá hefur Dan Rather, fréttamaðurinn fyrrverandi, sagt nauðsynlegt að hefja óháða rannsókn á þessum tengslum. Hvorki Bandaríkjastjórn né þjóðþingið njóti lengur trausts til þess að gera slíka rannsókn:

„Watergate var stærsta pólitíska hneykslið á minni ævi, þangað til kannski núna,“ sagði Rather á Facebook-síðu sinni.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×