Erlent

Trump sakar Demókrata um að flækjast fyrir sér

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Trump á fundi með fulltrúum lyfja- og líftæknifyrirtækja í Washington í gær.
Donald Trump á fundi með fulltrúum lyfja- og líftæknifyrirtækja í Washington í gær. Nordicphotos/AFP
Donald Trump bíður þess nú með mikilli óþreyju að öldungadeild Bandaríkjanna samþykki Jeff Sessions í embætti dómsmálaráðherra nýrrar ríkisstjórnar sinnar.

Trump rak í gær Sally Yates, starfandi dómsmálaráðherra, en hún hafði sagt að ráðuneytið myndi ekki verja nein dómsmál gegn hinu umdeilda banni við því að fólk komi til Bandaríkjanna frá Sýrlandi, Íran og nokkrum öðrum múslimaríkjum.

Yates var aðstoðardómsmálaráðherra í stjórn Baracks Obama og var fengin til að stýra ráðuneytinu til bráðabirgða þangað til nýr ráðherra kæmi.

Í staðinn fyrir hana var Dana Boente fenginn til þess að stýra ráðuneytinu þangað til Sessions tekur við, en Sessions er skoðanabróðir Trumps í innflytjendamálum.

Trump segir að Demókratar tefji vísvitandi fyrir því að deildin samþykki Sessions í embættið, og sama megi raunar segja um aðra einstaklinga sem Trump vill hafa með sér í ríkisstjórn.

„Demókratarnir eru að tefja fyrir ráðherravali mínu af pólitískum ástæðum eingöngu,“ skrifar hann á Twitter-síðu sína. „Þeir ættu að skammast sín. Engin furða að ekkert virki hér í Washington.“

Í gær bættu Demókratar svo um betur með því að mæta ekki til atkvæðagreiðslu á nefndarfundum um tvo aðra menn sem Trump vill gera að ráðherrum, en það eru þeir Steve Mnuchin sem á að verða fjármálaráðherra og Tom Price sem á að verða heilbrigðisráðherra. Með fjarveru sinni tefja Demókratar enn fyrir staðfestingarferlinu.

Trump skýrði síðan frá því á mánudag að hann væri búinn að velja hvern hann vilji gera að hæstaréttardómara í staðinn fyrir Antonin Scalia, sem lést fyrir tæpu ári. Trump ætlaði að tilkynna um niðurstöðu sína í gærkvöld, en það átti að gerast eftir að Fréttablaðið fór í prentun.

Öldungadeild þingsins þarf að staðfesta þá tilnefningu, rétt eins og tilnefningar í ráðherraembætti, en dregist hefur í tæpt ár að velja eftirmann Scalia í réttinn vegna þess að Repúblikanar vildu ekki láta Barack Obama ráða valinu.

Á mánudaginn gerði Trump sér einnig lítið fyrir og fékk helsta ráðgjafa sínum, Steve Bannon, sæti í þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna. Þessi ráðstöfun hefur sætt harðri gagnrýni, enda er Bannon ekki síður umdeildur en Trump. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×