Erlent

Trump óskaði Pútín til hamingju með kosningasigurinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Trunp hefur ítrekað vikið sér undan því að gagnrýna Pútín eða Rússland. Í fyrra sagðist hann trúa Pútín þegar hann segði að Rússar hafi ekki reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016.
Trunp hefur ítrekað vikið sér undan því að gagnrýna Pútín eða Rússland. Í fyrra sagðist hann trúa Pútín þegar hann segði að Rússar hafi ekki reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016. Vísir/AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti óskaði Vladimír Pútín, forseta Rússlands, til hamingju með endurkjör sitt um helgina í símtali í dag. Aðeins nokkrir dagar eru síðan Hvíta húsið lagði refsiaðgerðir á Rússa fyrir afskipti þeirra af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016. Trump segir að þeir Pútín ætli að hittast fljótlega.

Þrátt fyrir að leiðtogar annarra vestrænna ríkja hafi verið meira eða minna þöglir um endurkjör Pútín segist Trump hafa óskað honum til hamingju í „mjög góðu“ símtali þeirra í dag.

„Við hittumst líklega í ekki svo fjarlægri framtíð til að ræða vopnakapphlaupið sem er að fara úr böndunum,“ sagði Trump í dag, að því er segir í frétt New York Times. Þeir myndu jafnframt ræða spennu í Úkraínu, Sýrlandi og Norður-Kóreu.

Blaðið tekur fram að Barack Obama, forveri Trump í embætti forseta, hafi óskað Pútín til hamingju með kosningasigur sinn í mars árið 2012 í símtali.

Pútín hlaut 76% atkvæða í kosningunum á sunnudag. Ásakanir hafa komið fram um kosningasvik, þar á meðal að starfsmenn kjörstjórnar hafi bætt atkvæðum í kjörkassa. Sarah Huckabee Sanders, blaðafulltrúi Hvíta hússins, sagði í dag að möguleg kosningasvik hafi ekki komið til tals í símtali Trump og Pútín.

Stirð samskipti síðustu árin

Veruleg spenna hefur einkennt samskipti Evrópu og Bandaríkjanna við Rússland af ýmsum ástæðum undanfarin ár. Eftir að Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014 samþykktu Evrópumenn og Bandaríkjamenn refsiaðgerðir gegn þeim. Þá hafa Rússar tekið sér stöðu með Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í átökunum sem geisa þar í landi.

Þá hafa Rússar verið sakaðir um að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum til að hjálpa Trump og í fleiri kosningum á vesturlöndum. Þar við bætist að bresk og bandarísk stjórnvöld hafa kennt Rússum um að bera ábyrgð á taugaeitursárás á fyrrverandi rússneskan njósnara á Bretlandi fyrir rúmum tveimur vikum.

Hvíta húsið lagði refsiaðgerðir á Rússa í síðustu viku vegna afskiptanna af kosningunum árið 2016 og óvinveittra tölvuárása. Opinber rannsókn stendur yfir á því hvort að forsetaframboð Trump hafi átt í samráði við Rússa.


Tengdar fréttir

Eftirlitsmenn kvörtuðu yfir þúsundum kosningalagabrota

Vladímír Pútín verður áfram forseti Rússlands. Þegar kjörtímabilinu lýkur mun hann hafa stýrt Rússlandi, ýmist sem forseti eða forsætisráðherra, í 24 ár. Kosningar sunnudagsins þykja ekki án annmarka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×