Erlent

Trump lætur til sín taka á fyrstu dögum í embætti

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hafið valdatíð sína.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hafið valdatíð sína. Vísir/Epa
Donald Trump hefur tekið sín fyrstu skref sem forseti Bandaríkjanna með því að undirrita tilskipun sem miðar að því að endurskilgreina og endurgera heilbrigðsstefnu Bandaríkjanna sem einnig gengur undir nafninu Obamacare. Með tilskipuninni er stefnt að því að minnka efnahagslegar byrgðir að mati Trumps, sem Obamacare leggur á ríkið en Trump telur þær vera of miklar. Þetta kemur fram á fréttaveitu BBC.

Einnig hefur vakið athygli að Trump og aðstoðarmenn hans hafa strax lagst í það að setja fram áætlanir sínar inn á vefsíðu Hvíta hússins, aðeins degi eftir hann tók við embætti. Í raun má segja að vefsíðan hafi algjörlega verið tekin í gegn og að áherslumál Trumps fái þar að blómstra.

Þar er meðal annars er lögð áhersla á að endurskoða stefnu Bandaríkjanna í loftslagsmálum en eins og frægt er orðið hefur Trump farið mikinn í yfirlýsingum sínum að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu blekkingin ein.

Aðeins sex málefni er að finna inn á vefsíðunni og snúast þau að orkumálum, innflytjendamálum, vinnumarkaði, hernaðarmálum, stöðu lögreglunnar sem og viðskiptaháttum Bandaríkjanna. Það virðist sem hvergi sé minnst á lofstlagsmál né á mannréttindamál. Hugmyndir Trumps virðast byggja á popúlískum grunni og hvetja til einangrunarstefnu.  Í vígsluræðu sinni sór Trump þess heit að setja Bandaríkin í fyrsta sætið en það hefur verið eitt af hans aðal áherslum. 

Síðan Trump tók við sem forseti Bandaríkjanna hafa mótmæli verið skipulögð víða um heim og er þar verið að mótmæla framferði Trumps í málum innflytjenda og réttindum kvenna. Einnig var mikið um mótmæli í athöfninni sjálfri og voru um 200 manns handteknir. Talið er að um sex lögreglumenn hafi slasast í aðgerðunum.

Á vefsíðu BBC má meðal annars sjá myndband af því þegar kveikt er í bílum og fólk er handtekið.

 


Tengdar fréttir

Trump fundaði með Gore um loftslagsmál

Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjannai, fundaði í dag með Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna og dóttur hans Ivönku Trump, um aðgerðir í loftslagsmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×