Erlent

Trump lætur gagnrýni Kínverja sér sem vind um eyru þjóta

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tsai Ing-wen og Donald Trump
Tsai Ing-wen og Donald Trump V'isir/Getty
Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, varði í nótt umdeilt símtal hans og Tsai Ing-wen, forseta Taívans. Er þetta í fyrsta sinn sem forseti eða verðandi forseti Bandaríkjanna ræðir beint við leiðtoga Taívan frá árinu 1979.

Kínversk stjórnvöld sendu bandarískum yfirvöldum í kjölfarið formlega kvörtun þar sem farið var þess á leit að Bandaríkin héldu sig við stefnu sína í málefnum ríkjanna, sem alla jafna hefur gengið undir nafninu „Eitt Kína.“

Kínverjar hafa gert tilkall til Taívans allt frá árinu 1949 þegar leiðtogar lýðveldissinna í Kína flúðu þangað undan kommúnistum og stofnuðu þar ríki, sem þeir kölluðu, og kalla raunar enn, Lýðveldið Kína. Afar grunnt hefur verið á því góða á milli ríkjanna allar götur síðan en samskiptin hafa þó batnað allra síðustu ár.

Sjá einnig: Trump ræddi við forseta Taívan og Kínverjar munu tjúllast

Árið 1972 tóku Bandaríkin upp „Eitt Kína“-stefnu sína eftir fund Richard Nixon og Mao. Sendiráði Bandaríkjanna í Taívan var lokað árið 1979 en Bandaríkin hafa þó alla tíð síðan átt í nánum óopinberum samskiptum við yfirvöld í Taipei.

„Ég ítreka að það er einungis eitt Kína í heiminum og að Taívan er óaðskiljanlegur hluti kínversks landssvæðis. Stefnan um „Eitt Kína“- er grunnur samskipta Kína og Bandaríkjanna,“ segir í yfirlýsingu frá talsmanni kínverska utanríkisráðuneytsins.

Samband Bandaríkjanna og Kína hefur beðið verulega hnekki á undanförnum mánuðum vegna deilna í Suður-Kínahafi. Þá hefur Trump ítrekað skammast yfir yfirvöldum í Kína í kosningabaráttunni í ár.

Trump hefur verið duglegur við að svara fyrir sig á samskiptamiðlinum Twitter, bæði áður sem og eftir að ljóst var að hann yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Það varð engin breyting á því í nótt.

Þar sagði hann að frumkvæðið að samtalinu hafi komið frá forseta Taívans og að honum þætti furðulegt hvernig „Bandaríkin seldu Taívönum hergögn fyrir milljarða dala en mættu síðan ekki taka við heillaóskum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×