Erlent

Trump kynnir fyrstu aðgerðir sínar

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Trump tekur við embætti forseta Bandaríkjanna 20. janúar næstkomandi. Nordicphotos/AFP
Donald Trump tekur við embætti forseta Bandaríkjanna 20. janúar næstkomandi. Nordicphotos/AFP Vísir/AFP
Donald Trump hefur, bæði fyrir og eftir forsetakosningar, sent frá sér ýmsar yfirlýsingar um það hver verði fyrstu verk hans í embætti.

Þar á meðal ætlar hann að draga Bandaríkin út úr fjölþjóðlegum fríverslunarsamningum á borð við TPP og NAFTA. Einnig segist hann staðráðinn í að ryðja hindrunum úr vegi orkufyrirtækja, meðal annars þeirra sem vilja stunda bergbrot og kolanám.

„Þetta er það sem við viljum og þetta er það sem við höfum beðið eftir,“ segir hann um þessi áherslumál.

Þá ætlar hann að einfalda stjórnkerfi Bandaríkjanna og tryggja að fyrrverandi embættismenn geti ekki ráðið sig í hagsmunagæslu á vegum fyrirtækja eða erlendra ríkja.

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun frá CNN telja 53 prósent Bandaríkjamanna að hann muni standa sig vel, eða sæmilega vel, sem forseti. Þá segjast 40 prósent hafa mikla trú á að hann standi sig vel í efnahagsmálum.

CNN bendir á að Trump njóti að þessu leyti meiri stuðnings en Barack Obama, George W. Bush, Bill Clinton og Ronald Reagan áður en þeir tóku við embætti í fyrsta sinn.

Samkvæmt annarri skoðanakönnun, á vegum Pew Research, eru Bandaríkjamenn hins vegar mun svartsýnni á samskipti hvítra og svartra heldur en þeir voru fyrir átta árum, þegar Barack Obama var að búa sig undir að taka við í Hvíta húsinu.

Um 46 prósent þeirra telja að samskipti hópanna muni versna, og sérstaklega óttast þeldökkir íbúar þetta því 74 prósent þeirra segjast telja að samskiptin muni versna.

Trump verður forseti Bandaríkjanna þann 20. janúar næstkomandi og lofar að láta hendur standa fram úr ermum strax frá fyrsta degi.

Í lok október birti hann á vefsíðu sinni svokallaðan samning við þjóðina um verk sín fyrstu hundrað dagana í embætti. Á mánudag birti hann svo myndband á YouTube þar sem hann telur upp nokkur þeirra mála sem hann ætlar að vinda sér í strax fyrsta daginn.

Listinn frá því í október er töluvert ítarlegri, en þar kemur meðal annars fram að hann ætli að leggja niður fjárframlög Bandaríkjanna til loftslagsaðgerða á vegum Sameinuðu þjóðanna og leggja niður ýmsar bandarískar reglur um umhverfisvernd.

Hann ætlar einnig að loka á innflytjendur frá heimshlutum þar sem „tilhneiging er til hryðjuverka“ og senda úr landi ólöglega innflytjendur sem hafa brotið lög í Bandaríkjunum.

Hér er einungis fátt eitt talið, en Trump þarf samþykki þingsins fyrir sumum þessara aðgerða. Aðrar getur hann þó ákveðið upp á eigin spýtur.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×