Viðskipti erlent

Trump í vanda vegna vafasamra viðskipta FL Group

Birta Björnsdóttir skrifar
Telegraph fjallar um vafasöm viðskipti FL Group sem Trump virðist vera flæktur í.
Telegraph fjallar um vafasöm viðskipti FL Group sem Trump virðist vera flæktur í.
Fimmtíu milljón dollara fjárfesting FL Group í alþjóðlega fasteignafélaginu Bayrock Group árið 2007 gæti reynst forsetaframbjóðandanum Donald Trump erfiður ljár í þúfu. Fjárfestinging var síðar afgreidd sem lán, en talið er að það hafi verið gert til að sleppa við skattgreiðslur.

Breska blaðið The Telegraph birti í morgun ítarlega úttekt á málinu, sem gæti reynst hið vandræðalegasta fyrir Trump.

Í umfjölluninni kemur fram að blaðið segist hafa heimildir fyrir því að Donald Trump hafi skrifað upp á samning, sem hannaður hafi verið til þess eins að sleppa við að greiða tugi milljóna bandaríkjadollara í skatt. Um er að ræða 50 milljón dollara fjárfestingu FL Group í alþjóðlega fasteignafélaginu Bayrock Group árið 2007 líkt og greint var frá það ár.

 

Bayrock og FL Group gerðu með sér samning árið 2007.
Fjárfestingu breytt í lán
Meint skattsvik snúast um að fjárfestingunni hafi nokkrum vikum síðar verið breytt í lán. 
Að sögn blaðsins var þetta gert til að komast hjá skattgreiðslum í Bandaríkjunum en borga þarf 40 prósent skatt af fjárfestingu í New York en ekkert af skuld. 

Skjöl um tilfærslurnar skarta öll undirskrift Donalds Trump en lan Garten, lögmaður Trump, segir hann með undirskrift sinni hafa einfaldlega verið að staðfesta að viðskiptin hefðu farið fram. Hann hafi ekki verið að leggja blessun sína yfir eitt né neitt, enda hafi hann verið lítill hluthafi. 

Blaðamenn Telegraph segja þá fullyrðingu hinsvegar ekki standast skoðun því þeir hafi undir höndum gögn sem staðfesta að krafa hafi verið gerð um samþykki Trumps við tilfæringunum enda hafi hann verið lykilmaður í fjárfestingum Bayrock.

Þriggja mánaða rannsóknarvinna liggur að baki uppljóstrun Telegraph. Þeir sérfræðingar sem þar gefa álit sitt segja að Trump og ráðgjöfum hans hefði átt að vera morgunljóst að gjörningurinn stæðist ekki lög.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skattamál Trumps eru til umfjöllunar en athygli vakti fyrir nokkrum vikum þegar hann tilkynnti að hann hyggðist brjóta þá hefð að frambjóðendur til embættis forseta Bandaríkjanna birti upplýsingar um skattgreiðslur sínar. Hann upplýsti á dögunum að hann hafi þénað rúmlega 500 milljónir dollara á síðasta ári en hefur oft látið hafa eftir sér að hann reyni að greiða eins lítið í skatt og mögulegt sé.


Tengdar fréttir

Trump búinn að ná meirihluta

Nánast öruggt þykir að hann muni komast hjá miklum deilum á flokksþingi Repúblikana í júlí.

Trump reynir að borga sem minnstan skatt

Donald Trump, forsetaframbjóðandi flokks repúblikana í Bandaríkjunum, sagði í gær að upplýsingar um skattgreiðslur hans væru einkamál og kæmu engum við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×