Erlent

Trump hjólar í Hillary og heitir því að vera ekki leiðinlegur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Trump er farinn að beina sjónum sínum að Demókrötum.
Trump er farinn að beina sjónum sínum að Demókrötum. Vísir/Getty
Donalt Trump, líklegt forsetaefni Repúblikana, hjólaði í dag duglega í Hillary Clinton, líklegt forsetaefni Demókrata. Sagði Trump að Clinton væri óheiðarleg og lofaði hann stuðningsmönnum sínum að hann myndi ekki verða leiðinlegur með því að verða of forsetalegur. 

Sigur Trump í forkosningunum í New York þýðir að miklar líkur eru á að Trump verði forsetaefni Repúblikana í forsetakosningum í Bandaríkjunum í nóvember. Stjórnmálaskýrendur ytra telja að nú þurfi Trump að verða forsetalegri en áður en digurbarkalegar yfirlýsingar hans hingað til hafa ekki endilega þótt hæfa þeim sem sækist eftir því að verða forseti Bandaríkjanna.

„Ég get sagt ykkur það að ef ég fer um of í forsetagírinn mun fólk fá leið á mér mjög flótt,“ sagði Trump áður en hann bætti því við að hann óttaðist að stuðningsmenn sínir myndu einfaldlega sofna færi hann í þann gírinn.

Stuðningsmenn Trump virðast þó ekki styðja Trump vegna þess hversu hrifnir þeir eru af stefnumálun hans. Samkvæmt könnun sögðust 43 prósent þeirra sem styðja Trump gera það vegna þess að hann segir það sem hann hugsar, aðeins átta prósent aðspurðra líkaði vel við stefnumál Trump.

Eftir sigur Trump í New York hefur hann í auknum mæli farið að snúa sér að andstæðingum sínum í Demókrataflokknum fremur en að beina sjónum sínum að keppinautum sínum innan eigin flokks og þar hefur Hillary Clinton helst fengið að heyra það.

Sagði Trump að Clinton væri manneskja sem hefði fjölmarga galla og að hún væri versti mögulegi fulltrúi kvenna. Þá hélt Trump því fram að eina haldreipi Clinton í kosningabaráttunni væri sú staðreynd að hún væri kona. Þá saði Trump að Clinton væri óheiðarleg.

„Við köllum hana óheiðarlegu Hillary (crooked Hillary) vegna þess að hún er óheiðarleg og hún hefur alltaf verið það,“ sagði Trump en Clinton hefur neitað að tjá sig um ummæli Trump.


Tengdar fréttir

Strax rýnt í næstu varaforseta

Forvali í forsetakosningum í Bandaríkjunum lýkur ekki fyrr en í júní, en fjölmiðlar eru nú þegar farnir að velta fyrir sér varaforsetaefnum flokkanna. Varaforsetaefnið verður kynnt á flokksþingi í júlí.

Hillir undir sigur hjá Clinton og Trump

Bernie Sanders fékk verri útreið í New York en fyrirfram var talið og þykir nú vart eiga möguleika lengur gegn Clinton. Donald Trump þykir sömuleiðis orðinn nokkuð öruggur með útnefningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×