Erlent

Trump fór létt með Suður-Karólínu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Auðkýfingurinn umdeildi styrkti enn frekar stöðu sína í forkosningum Repúblikana með sigri í Suður-Karólínu.
Auðkýfingurinn umdeildi styrkti enn frekar stöðu sína í forkosningum Repúblikana með sigri í Suður-Karólínu. Vísir/Getty
Donald Trump sigraði forkosningar Repúblikana-flokksins í Suður-Karólínu í gær með talsverðum yfirburðum. Sigurinn styrkir stöðu hans sem helsta forsetaefni flokksins en hann hefur nú unnið tvær af þeim þremur forkosningum sem haldnar hafa verið.

Trump hlaut 32,5 prósent atkvæða og var tíu prósentum á undan Marco Rubio og Ted Cruz sem enduðu í öðru og þriðja sæti með rétt rúm 22 prósent atkvæða.

Staða Trump, sem leitt hefur í skoðanakönnunum, hefur því styrkst verulega en hann vann einnig í New Hampshire. Langt er síðan sá frambjóðandi Repúblikana-flokksins sem vann bæði í New Hampshire og Suður-Karólínu hlaut ekki útnefningu flokksins.

Auðkýfingurinn umdeildi hefur komið eins og stormsveipur inn í hið pólitíska landslag Bandaríkjanna og hafa deilur hans við Páfann og aðra keppinauta sína haft lítil sem engin neikvæð áhrif á fylgi Trump.

Sjá einnig: Allt sem þú þarft að vita um forkosningarnar í Bandaríkjunum

Illa hefur gengið fyrir flokksgæðinga að keppa gegn Trump og í kjölfar úrslitanna í gær tilkynnti Jeb Bush að hann myndi draga framboð sitt til baka. Var hann lengi vel helsta vonarstjarna hins hefðbundna kjarna Repúblikana. Hann fékk aðeins tæp átta prósent atkvæða í Nevada.

Var Bush helsti keppinautur Marco Rubio um stuðning hins hefbundna kjarna flokksins og þykir góður árangur Rubio í Suður-Karólínu og það að Bush sé hættur merki um það að einvígið um útnefningu flokksins standi á milli Trump og Rubio.

Framundan eru forkosningar í Nevada þann 23. febrúar áður en kosið verður samtímis í þrettán ríkjum þann 1. mars. Er það einn mikilvægasti dagurinn í öllu forkosningaferlinu enda verður kosið um stuðning um fimmtung allra kjörmanna og ljóst þykir að sigur Trump í gær boði gott fyrir hann í komandi forkosningum.

Trump var sigurreifur í sigurræðu sinni í gær.


Tengdar fréttir

Trump og Sanders rúlluðu upp New Hampshire

Repúblikaninn Donald Trump og Demókratinn Bernie Sanders unnu báðir stórsigra í forvölum flokka sinna í New Hampshire í nótt. Sanders fékk um sextíu prósent atkvæða í ríkinu á meðan Hillary Clinton fékk um fjörutíu prósent og Trump er langt á undan hinum frambjóðendunum hjá Repúblikönum með 35 prósent atkvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×