Erlent

Trump færist nær Clinton

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Hillary Clinton og varaforsetaefni hennar, Tim Kaine, sem gæti þurft að taka við keflinu leiði ný rannsókn lögreglunnar á tölvupóstum hennar eitthvað bitastætt í ljós. Stutt er til stefnu því kosið verður eftir viku. Fréttablaðið/EPA
Hillary Clinton og varaforsetaefni hennar, Tim Kaine, sem gæti þurft að taka við keflinu leiði ný rannsókn lögreglunnar á tölvupóstum hennar eitthvað bitastætt í ljós. Stutt er til stefnu því kosið verður eftir viku. Fréttablaðið/EPA
Yfirlýsing James Comey, yfirmanns bandarísku alríkislögreglunnar FBI, hefur komið kosningabaráttu Hillary Clinton í nokkurt uppnám.

Hann skýrði frá því í síðustu viku að FBI ætlaði að hefja rannsókn á tölvupóstum úr tölvu þingmannsins Anthonys Weiner, en hann sætir rannsókn vegna gruns um kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku.

Í tölvunni sé meðal annars að finna tölvupósta frá Hillary Clinton, sem áður hefur sætt rannsókn vegna tölvupóstsamskipta sinna. Comey sagðist telja hugsanlegt að tölvupóstsamskipti Clinton við Weiner gætu reynst mikilvæg fyrir hina rannsóknina á tölvupóstum Clinton.

Comey hefur verið gagnrýndur fyrir að nefna þetta opinberlega svona skömmu fyrir forsetakosningar, en þær verða haldnar í Bandaríkjunum á þriðjudaginn í næstu viku, þann 8. nóvember.

Demókrataþingmaðurinn Harry Reid, leiðtogi minnihlutans í öldungadeild, segir Comey jafnvel hafa gerst brotlegan við lög með þessu: „Starfsfólk mitt hefur komist að þeirri niðurstöðu að þetta framferði geti verið brot á taumhaldslöggjöfinni, sem bannar embættismönnum FBI að nota opinbera stöðu sína til þess að hafa áhrif á kosningar,“ sagði Reid í yfirlýsingu á sunnudag.

Hann gaf engar upplýsingar um hugsanlegt innihald tölvupóstanna eða hvers vegna ástæða gæti þótt til þess að efna til rannsóknar.

Óljóst er hvaða áhrif þetta mun hafa á úrslit forsetakosninganna, en heldur hefur verið að draga saman með Clinton og Donald Trump undanfarið. Um miðjan október var hún með um sjö prósenta forskot að meðaltali en í gær var það komið niður fyrir þrjú prósent.

Trump og stuðningsmenn hafa óspart notfært sér þetta baráttu sinni til framdráttar, enda beinir þetta athyglinni frá vandræðum Trumps sjálfs sem hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir óviðeigandi ummæli um konur og fyrir að birta ekki upplýsingar um skattgreiðslur sínar.

Talið er að Clinton og stuðningsmenn hennar muni nú, þessa viku sem eftir er til kosninga, beita sér af meiri hörku gegn Trump en kannski hefði orðið ef þessi yfirlýsing frá FBI hefði ekki komið fram á síðustu stundu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×