Erlent

Trump drepur loftslagsaðgerðir Bandaríkjanna

Kjartan Kjartansson skrifar
Donald Trump ásamt varaforsetanum Mike Pence (t.v.) og forstjóra Umhverfisstofnunarinnar Scott Pruitt (t.h.) áður en hann skrifaði undir tilskipunina.
Donald Trump ásamt varaforsetanum Mike Pence (t.v.) og forstjóra Umhverfisstofnunarinnar Scott Pruitt (t.h.) áður en hann skrifaði undir tilskipunina. Vísir/EPA
Bandarísk stjórnvöld hætta að reyna að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með tilskipun sem Donald Trump forseti skrifaði undir í dag. Við undirritunina sagðist Trump vera að binda enda á „stríð gegn kolum“ og reglugerðir sem drepi störf.

Með forsetatilskipun sinni um „orkusjálfstæði“ hyggst Trump afnema loftslagsaðgerðir forvera síns í embætti, Baracks Obama.

Hryggjarstykki þeirra er Áætlunin um hreina orku (e. Clean Power Plan) sem ætlað var að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni frá orkuverum og draga úr brennslu á kolum. Umhverfisstofnuninni verður nú falið að draga áætlunina til baka og endurskrifa hana.

Tilskipunin afnemur einnig tímabundið bann sem Obama lagði við nýrri kolavinnslu á alríkislandi úr gildi og gefur kola- og olíufyrirtækjum meira svigrúm til að losa metan út í andrúmsloftið.

Ólíklegt til að endurvekja störf í kolaiðnaði

Trump segir að tilskipunin muni endurvekja þúsundir kolanámustarfa sem hafa glatast undanfarin ár og áratugi, ekki síst í þeim ríkjum Bandaríkjanna þar sem kjósendur fleyttu honum í embætti forseta.

Sérfræðingar telja það hins vegar ólíklegt þar sem að kolavinnsla hafi fyrst og fremst átt undir högg að sækja vegna markaðsafla, ekki vegna of strangra reglna um koltvísýringslosun. Kol séu einfaldlega orðin minna samkeppnishæf við ódýrara jarðgas og endurnýjanlega orkugjafa. Vélvæðing hefur einnig fækkað störfum við kolavinnslu samkvæmt frétt New York Times.

Þá er bent á að Bandaríkin flytji ekki inn kol. Orkuver í Bandaríkjunum séu fyrst og fremst knúin með innlendum kolum og gasi. Því hafi tilskipunin ekkert að gera með orkusjálfstæði landsins.

Þrátt fyrir tilskupina er talið að það muni taka fleiri mánuði og jafnvel ár fyrir Trump að vinda ofan af loftslagsaðgerðum Obama samkvæmt frétt BBC. Áætlun hans um hreina orku er þannig fyrir dómstólum og þarf Hæstiréttur Bandaríkjanna að samþykkja að Umhverfisstofnunin breyti henni á meðan.

Jafnvel þegar sú heimild liggur fyrir tekur við vinna hjá Umhverfisstofnuninni að skrifa og réttlæta nýjar reglur til að koma í staðinn. Búist er við því að umhverfisverndarsinnar muni draga það ferli á langinn við hvert tækifæri, meðal annars fyrir dómstólum.

Þó að tilskipunin fjalli ekki um aðild Bandaríkjanna að Parísarsamkomulaginu og talið ólíklegt að þau muni standast markmiðin sem þau settu sér undir stjórn Obama um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×