Trúir ekki að þetta sé tónninn í Ýmismönnum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. maí 2008 16:09 Þór Jónsson.
Undrun, segir Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, eru fyrstu viðbrögðin við afstöðu forsvarsmanna Siglingafélagsins Ýmis. „Við trúum því eiginlega ekki að þetta sé tónninn í forystu Siglingaklúbbsins Ýmis. Það sem gerðist þarna var að settir voru niður gámar í bráðabirgðaaðstöðu félagsins sem lokuðu akstursleið íbúa bryggjuhverfisins. Við það varð að sjálfsögðu ekki unað enda voru gámarnir ekki á þeim stað sem um var samið," útskýrði Þór sem segir íþróttafulltrúa hafa farið á vettvang með starfsmönnum bæjarins í dag. Hafi þeir lagað til á svæðinu og næst sé ætlunin að afmarka aðstöðu siglingaklúbbsins með girðingum svo ekki verði ekið inn á svæðið. Þór segist einkum undrast að þessi ummæli Ýmismanna komi fram núna, „fáeinum dögum áður en taka á skóflustungu fyrir ekki 300 fermetra, eins og talað var um, heldur 400 fermetra aðstöðu sem Siglingaklúbburinn Ýmir fær á nýjum stað. Af hverju er ekki þegar búið að reisa það? Af því að þetta fer á púða sem er á uppfyllingu sem er ekki nægilega sigin til að hægt sé að byggja á honum," útskýrir Þór og bætir því við að það sé vilji Kópavogsbæjar að gera íþrótta- og tómstundamannvirki í bænum sem best úr garði. „Það stendur því alls ekki til að koma eitthvað ræfilslega fram við siglingaklúbbinn," sagði Þór að lokum.
Tengdar fréttir Verulega ósáttir við aðstöðuleysi siglingafélags Forsvarsmenn Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi kveðast verulega óánægðir með að Kópavogsbær hafi svikið félagið um bráðabirgðaaðstöðu sem því hafi verið lofað þar til framkvæmdum lýkur við nýja aðstöðu félagsins Fossvogsmegin í Kópavoginum en hennar hefur verið beðið í sjö ár. 30. maí 2008 11:26 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira
Verulega ósáttir við aðstöðuleysi siglingafélags Forsvarsmenn Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi kveðast verulega óánægðir með að Kópavogsbær hafi svikið félagið um bráðabirgðaaðstöðu sem því hafi verið lofað þar til framkvæmdum lýkur við nýja aðstöðu félagsins Fossvogsmegin í Kópavoginum en hennar hefur verið beðið í sjö ár. 30. maí 2008 11:26