Innlent

Truflanir á Kröflulínu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Myndin tengist fréttinn óbeint.
Myndin tengist fréttinn óbeint. mynd/rarik
Rafmagnstruflanir urðu á Akureyri eftir að Kröflulína 1 leysti út en við það rofnaði byggðalínuhringur.

„Það urður truflanir á Kröflulínu sem liggur frá Kröflu að Rangárvöllum við Akureyri en þetta ætti allt að vera komið inn aftur“ segir Sigurður Sigurðsson á stjórnstöð Landsnet.

Sigurður segist telja að tveir fasar hafi slegist saman á Vaðlaheiði en mjög hvasst hefur verið á heiðinni.


Tengdar fréttir

Holtavörðuheiði lokað

Búið er að loka Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Laxársdalsheiði vegna mikillar hálku og óveðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×