Golf

Troy Merritt setti vallarmet og sigraði á Quicken Loans National

Troy Merritt fagnar sigrinum í gær.
Troy Merritt fagnar sigrinum í gær. Getty
Bandaríkjamaðurinn Troy Merritt sigraði á Quicken Loans National mótinu sem kláraðist í gær en hann lék hringina fjóra á Robert Trent Jones vellinum á samtals 18 höggum undir pari.

Sigurinn kom eins og þruma úr heiðskýru lofti fyrir Merritt sem hafði misst af niðurskurðinum í fimm mótum á PGA-mótaröðinni í röð og virtist ekki vera í miklu formi fyrir helgina.

Hann lék þó frábært golf, sérstaklega á þriðja hring þar sem hann lék á 61 höggi eða tíu undir pari og bætti vallarmetið.

Rickie Fowler tryggði sér annað sætið á 15 höggum undir pari en Svíinn David Lingmerth endaði einn í þriðja sæti á 14 undir.

Tiger Woods var í toppbaráttunni fyrstu tvo hringina en fataðist flugið heldur betur á þeim þriðja.

Hann lék þó fjórða hring í gær vel eða á 68 höggum og endaði í 19. sæti sem verður að teljast gott miðað við gengi þessa fræga kylfings á árinu sem hefur verið mjög magurt.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni er Bridgestone Invitational sem er hluti af heimsmótaröðinni í golfi en það hefst á Firestone vellinum á fimmtudaginn næsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×