Innlent

Tróð saur upp í samfanga sinn: „Ég skal ganga frá þér“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Litla-hraun.
Litla-hraun. Vísir/Vilhelm

Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara á hendur Baldri Kolbeinssyni, sem ákærður er fyrir einstaklega ógeðfellda árás á samfanga sinn í fangelsinu við Litla-Hraun í maí á síðasta ári, fór fram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Honum er gefið að sök að hafa ráðist á samfanga sinn og troðið upp í hann mannasaur. Árásin náðist á myndband.

„Það var rosalega mikið af skít. Aðrir fangaverðir voru einnig útataðir í skít eftir að hafa þurft að kljást við Baldur,“ segir fangavörður sem kom að árásinni.

Sá sem fyrir árásinni varð sat inni á Litla-hrauni fyrir kynferðisbrot gegn barni, en var í kjölfarið fluttur í annað fangelsi. Síðan hefur hann verið látinn laus.

„Baldur stendur bara upp, með saur í poka, og makaði honum framan í mig og tróð honum upp í mig líka. Þetta fór út um allt, upp í mig, í hárið á mér, andlitið og fötin. Þetta var út um allt,“ segir hann. Hann var fluttur á slysadeild með áverka á brjósti og hægri öxl, bólginn í andliti og opið sár við munnvik.

Hann segir sér hafa borist hótanir frá Baldri eftir árásina. „Baldur kom til mín og spurði hvort ég ætlaði að draga kæruna til baka. Ég sagðist ekki vera búinn að ákveða það. Þá sagði hann:

„Ef þú dregur ekki kæruna til baka þá skal ég sjá til þess að þú fáir ekkert út úr málinu og ég skal ganga frá þér. Hvort sem það er ég eða einhver annar“. Ég lét fangaverðina vita því þetta var hótun,“ segir hann og bætir við:

„Ég er dæmdur kynferðisbrotamaður og við verðum fyrir miklu aðkasti. Ég hef ekki átt í neinum samskiptum við Baldur en hann sagði við mig: „Hvenær ætlaru að hengja þig? Hvenær ætlaru að hengja þig?“

Fangavörður sagði í vitnaleiðslum í dag að kynferðisbrotamenn í fangelsinu yrðu oft fyrir miklu aðkasti og því þyrfti að fylgjast sérstaklega með þeim. Þegar árásin hafi átt sér stað hafi ekkert óeðlilegt verið í gangi, báðir hefðu þeir setið á sitthvorum bekknum án nokkurra orðaskipta.

Baldur Kolbeinsson, 24 ára, hefur hlotið fjölda refsidóma frá sautján ára aldri. Ríkissaksóknari höfðar nú mál gegn honum vegna árásar á samfanga sinn, Matthías Mána Erlingsson, í september á síðasta ári og vegna innbrots í heimahús í Kópavogi í febrúar síðastliðnum.


Tengdar fréttir

Misþyrmdi samfanga

Baldur Kolbeinsson, fangi á Litla-Hrauni, sem ákærður hefur verið fyrir árás á samfanga sinn er gefið að sök að hafa meðal annars safnað töluverðu magni af mannasaur í poka og troðið saurnum upp í munn annars fanga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×