Skoðun

Treystum norræna módelið

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði skrifar
Þegar við lítum til okkar helstu samanburðarlanda, innan og utan Evrópu er ástæða til að trúa því að við höfum það gott hér á Norðurlöndum og getum verið stolt. Norræna módelið hefur reynst vera ein besta samfélagsgerð í heimi.

Þetta gerist ekki af sjálfu sér og er helst að þakka sterkri hreyfingu launafólks, jafnaðarflokkum og mikilvægu samstarfi milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisins í gegnum þríhliða samstarf og samninga. Norrænn vinnumarkaður veitir atvinnurekendum mikinn sveigjanleika og á sama tíma veitir hann launafólki mikið starfsöryggi, tekjutryggingu og sanngjörn vinnuskilyrði. Það er einmitt vegna mikils sveigjanleika að atvinnurekendur þora að ráða fleira fólk. Þess vegna er módelið okkar stundum kallað „norræna súpermódelið“.

Stórar áskoranir

En norræna módelið stendur einnig frammi fyrir stórum áskorunum, m.a. vegna félagslegra undirboða á launum og vinnuskilyrðum. Þess vegna er nauðsynlegt á næstu árum að samræma reglur á vinnumarkaði Evrópu og Norðurlandanna og styrkja norræna módelið til að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar félagslegs undirboðs.

Á sama tíma hafa Norðurlöndin ekki nýtt alla möguleika sína, sérstaklega þegar kemur að vinnumarkaðnum. Daglega koma upp tilfelli þar sem Norðurlandabúar mæta hindrunum vegna óskýrra og ólíkra regla þegar þeir fara yfir landamærin. Þess vegna er enn mikilvægara en áður að skapa gott samstarf á Norðurlöndum og auka þannig hreyfingu vinnuafls milli landanna okkar. Það er kominn tími til að finna varanlegar lausnir til að Norðurlöndin verði einn vinnumarkaður, minnka svokallaðan kerfisbundna mun og skapa möguleika á kraftmeiri og stærri sameiginlegum vinnumarkaði.

Við veljum norræna módelið

Það er pólitískt val í hvaða átt við ætlum að færa samfélag okkar og á næstu árum þurfum við að velja hvort norrænu löndin verja og styrkja norræna módelið og halda áfram á þeirri góðu braut sem við höfum verið á síðustu hundrað ár, eða að yfirgefa norræna módelið. Viljum við meiri jöfnuð í samfélaginu, jafnrétti, grænan vöxt og atvinnu fyrir alla eða viljum við ójöfnuð og meira frelsi fyrir fyrirtæki til þess að stunda félagsleg undirboð og nýta ódýrt vinnuafl þvert á landamæri?

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði eru ekki í vafa, við viljum verja og treysta norræna módelið í samstarfi við hreyfingu launafólks. Það höfum við gert með Sørmarkayfirlýsingu norrænna jafnaðarmanna og launþegahreyfingar og í starfi okkar í Norðurlandaráði.

Við munum m.a. ræða ofangreind málefni og mörg önnur á ráðstefnu sem Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði ásamt hugmyndasmiðjunni Cevea, þingflokki jafnaðarmanna í Evrópuþinginu og NFS – Norrænu launþegahreyfingunum, halda danska þinginu í Kaupmannahöfn í dag 4. maí.

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði:

Marit Nybakk, formaður, Noregi

Karin Gaardsted, Danmörk

Phia Andersson, Svíþjóð

Tuula Peltonen, Finnland

Guðbjartur Hannesson, Ísland




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×