Sport

Treyja Tom Brady frá því í Super Bowl fundin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tom Brady fagnar í treyjunni sem nú er fundin.
Tom Brady fagnar í treyjunni sem nú er fundin. Vísir/Getty
New England Patriots vann Super Bowl í Houston í síðasta mánuði eftir ótrúlega endurkomu og fyrstu framlenginguna í sögu Super Bowl.

Það gerði síðan sigurinn ennþá sögulegri að Tom Brady varð fyrsti leikstjórnandinn í sögunni til að vinna fimm meistaratitla í Super Bowl. Auk þessa setti hann fjölda annarra meta í leiknum.

Keppnistreyja Tom Brady var því eitthvað til að halda upp á en þegar Brady ætlaði að finna treyju sína rétt fyrir brottför úr klefanum þá fannst hún hvergi. Brady hafði sett hana í poka en pokinn var á bak og burt.

Brady sá mikið eftir treyjunni og eigandi New England Patriots gekk svo langt að líkja því við að málverki eftir Chagall eða Picasso hafði verið stolið.

Treyja Tom hafði hreinlega gufað upp og málið var strax áberandi í bandarískum fjölmiðlum. Treyjan er nú fundin og það í Mexíkó. ESPN segir frá því að treyja Tom hafi fundist hjá ónefndum fjölmiðlamanni sem hafði aðgang að klefa New England Patriots í Houston.

Umræddur fjölmiðlamaður var ekki aðeins með treyju Tom heldur einnig aðra treyju frá leikmanni New England Patriots.  FBI var komið í málið og spurningum fjölmiðla og annarra er nú vísað þangað.

NFL tilkynnti um fundinn í dag en það er enn verið að ganga úr skugga um að þetta sér í raun treyjan sem Tom Brady klæddist í þessum ótrúlega leik.

Lögreglan í Houston taldi verðmæti treyjunnar vera 500 þúsund dollarar eða 87 milljónir íslenskra króna.

NFL

Tengdar fréttir

Nú er hægt að borða eins og Tom Brady

Fimmfaldi NFL-meistarinn Tom Brady er enn á toppnum þó svo hann sé orðinn 39 ára. Hann hefur meðal annars þakkað mataræðinu fyrir að vera í eins góðu formi og hann er í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×