Innlent

Transfitusýrur ættu að hverfa

Transfitusýrur ættu að hverfa úr í íslenskum matvælum innan nokkurra mánaða segir matvælafræðingur. Nýtt reglugerðarákvæði um hámarksmagn transfitusýra í matvælum tekur gildi eftir helgi.

Frá og með næsta mánudegi verður óheimilt að markaðssetja matvæli sem innihalda meira en tvö grömm af transfitusýrum í hverjum hundrað grömmum af heildarfitumagni. Transfitusýrurnar er helst að finna í snakki, kexi og djúpsteiktum matvælum en neysla á þeim er talin auka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum.

Ólafur Reykdal, matvælafræðingur, segir enga vöru þurfa að hverfa af markaði vegna reglubreytingarinnar. „Það er viðfangsefni í matvælaiðnaðinum að framleiða bæði bragðgóð og holl matvæli svo að þetta eru menn að leysa á ágætan hátt og það þarf alls ekki að vera að neytendur verði nokkurn hlut varir við þessa breytingu þegar skipt er um hráefni."

Framleiðendum ber ekki skylda til að gefa upp magn transfitusýra í matvælum en neytendur ættu að geta lesið út frá merkingum hvort að þær séu til staðar. „Til dæmis ef að eina fituhráefnið myndi vera jurtaolía, þá ætti ekki að vera transfitusýrur til staðar," segir Ólafur.

Reglugerðin gildir ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi, en það eru afurðir jórturdýra eins og kjöt- og mjólkurfita. Magn transfitusýra mældist lengi vel mjög hátt í íslenskum matvælum en verulega hefur dregið úr vægi þeirra á síðustu árum.

„Þær ættu að hverfa á næstu mánuðum ef að þær eru ekki þegar horfnar úr matvælum sem matvælaiðnaðurinn framleiðir," segir Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×