Bílar

Toyota frumsýnir nýjan Avensis

Finnur Thorlacius skrifar
Nýr Toyota Avensis.
Nýr Toyota Avensis.
Toyota býður alla velkomna á fyrstu sýningu haustsins sem haldin verður á morgun, laugardag, 5. september. Opið verður hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni í Garðabæ, í Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi frá kl. 12 – 16.

Nýr Toyota Avensis verður frumsýndur á laugardag og hefur bíllinn breyst töluvert frá núverandi kynslóð.  Þessi vinsæli fjölskyldubíll skartar sportlegu útliti en við hönnun bílsins var í öllu tekið tillit til þæginda farþega og ökumanns. Öll innrétting bílsins er ný og er hann nú m.a. búinn 8“ margmiðlunarskjá.

Toyota Avensis fæst bæði með dísil- og bensínvél og kostar frá 3.970.000 kr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×