Fótbolti

Totti bætti met Giggs | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Ítalinn Francesco Totti, sem hélt nýverið upp á 38 ára afmæli sitt, varð í kvöld elsti markaskorari í sögu Meistaradeildar Evrópu.

Markið skoraði hann er hann tryggði liði sínu, AS Roma, 1-1 jafntefli gegn Manchester City í E-riðli.

Gamla metið átti Ryan Giggs sem skoraði fyrir Manchester United í leik gegn Benfica í september árið 2011. Hann var þá 37 ára og 289 daga gamall.

Totti hefur leikið með Roma allan sinn feril en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins árið 1992. Hann á meira en 700 leiki að baki með liðinu í öllum keppnum og hefur skorað í þeim tæplega 300 mörk.

Markið má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×