Fótbolti

Totti afgreiddi bleika Evrópumeistara | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Roma lagði Evrópumeistara Real Madrid, 1-0, á International Champions Cup-æfingamótinu í Bandaríkjunum í gærkvöldi, en leikurinn fór fram í Dallas.

Francesco Totti, sem er að hefja sína 23. leiktíð með Roma, skoraði eina mark leiksins eftir virkilega vel útfærða sókn ítalska liðsins.

Öll liðin í mótinu nota leikina til að sýna alla nýju búningana sína og voru Evrópumeistararnir í huggulegum, bleikum varabúningi í gær.

Manchester United er efst í A-riðli mótsins með fimm stig, en Roma og Inter koma næst með þrjú stig hvort lið. Real Madrid er á botninum með eitt stig.

Í lokaumferðinni mætast Inter og Roma annarsvegar og Man. United og Real Madrid hins vegar, en sigurvegarinn úr A-riðli mætir sigurvegara B-riðils í úrslitaleik í Miami á mánudaginn kemur.

Í spilaranum hér að ofan má sjá allt það helsta úr leiknum sem sýndur var á Stöð 2 Sport 2 í nótt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×