Fótbolti

Totti: Hef enn margt fram að færa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Totti hefur spilað með Roma í rúma tvo áratugi.
Totti hefur spilað með Roma í rúma tvo áratugi. Vísir/Getty
Fransesco Totti, fyrirliði Roma, er spenntur fyrir því að spila í Meistaradeild Evrópu á ný, en ítalska liðið mætir CSKA Moskvu á Ólympíuleikvanginum í Róm í kvöld.

Rúm þrjú ár eru síðan Roma lék síðast í Meistaradeildinni, en það var gegn Shakhtar Donetsk 8. mars 2011. Sá leikur fór ekki vel fyrir Totti og félaga sem máttu þola 3-0 tap fyrir úkraínska liðinu.

Totti, sem verður 38 ára þarnæsta laugardag, segir að hann geti enn komið að gagni þrátt fyrir aldurinn.

„Ég hef enn trú á sjálfum mér og er ánægður með það sem ég hef gert og er enn að gera,“ sagði Totti á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn CSKA Moskvu.

„Mér finnst ég enn hafa margt fram að færa og ég verð sá fyrsti til að stíga til hliðar ef mér finnst ég ekki vera nógu góður fyrir liðið. En það er ánægjulegt fyrir mig og allan hópinn að vera kominn aftur í Meistaradeildina. Þetta eru leikirnir sem Roma á að vera að spila á hverju ári.“

Rómverjar voru ekki heppnir með riðil, en auk þeirra og CSKA Moskvu eru Þýskalandsmeistarar Bayern München og Englandsmeistarar Manchester City í riðlinum.

Þrátt fyrir þennan erfiða riðil segir Totti að Roma eigi góða möguleika á að komast áfram í útsláttarkeppnina.

„Við viljum komast eins langt og mögulegt er,“ sagði fyrirliðinn. „Við lentum í erfiðum riðli, en ég er ánægður með það. Við eigum möguleika gegn hvaða liði sem er. Ég vona að Roma komist lengra en undir stjórn Luciano Spalletti.“

Umræddur Spalletti kom Roma í átta-liða úrslit Meistaradeildarinnar tímabilin 2006-07 og 2007-08, en Manchester United sló ítalska liðið úr keppni í bæði skiptin.

Roma tryggði sér þátttökurétt í Meistaradeildinni með því að lenda í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Rómverjar hafa unnið báða leiki sína í deildinni heima fyrir til þessa.

Totti bæði leikja- og markahæsti leikmaður í sögu Roma.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×