Enski boltinn

Tottenham strax byrjað á leikmannamarkaðinum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wimmer í leik með Köln.
Wimmer í leik með Köln. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham Hotspur hefur fest kaup á austurríska varnarmanninum Kevin Wimmer frá Köln.

Wimmer skrifaði undir fimm ára samning við Tottenham en talið er að kaupverðið sé í kringum fjórar milljónir punda.

Wimmer er fyrsti leikmaðurinn sem Tottenham kaupir í sumar en liðið lenti í 5. sæti úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili.

Wimmer, sem er 22 ára, gekk til liðs við Köln frá LASK Linz 2012 og spilaði 72 leiki fyrir þýska liðið. Hann hefur leikið einn landsleik fyrir Austurríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×