Enski boltinn

Tottenham og Liverpool skildu jöfn á White Hart Lane

Stefán Árni Pálsson skrifar
Liverpool og Tottenham gerðu 1-1 jafntefli í stórleik ensku úrvalsdeildinni en leikurinn fór fram á White Hart Lane í London. 

Liverpool komst yfir í dag rétt fyrir lok fyrri hálfleiks þegar James Milner skoraði úr vítaspyrnu. 

Liverpool var sterkari aðilinn í leiknum í dag en það var samt Danny Rose sem jafnaði metin fyrir heimamenn um tuttugu mínútum fyrir leikslok. 

Liverpool með fjögur stig eftir þrjár umferðir. Tottenham er með fimm stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×