Torres: Fyrstu mánuðirnir hjá Chelsea eru búnir að vera mjög erfiðir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2011 09:00 Fernando Torres. Mynd/Nordic Photos/Getty
Fernando Torres viðurkennir að fyrstu mánuðirnir hjá Chelsea hafi verið hans erfiðustu á ferlinum en að hann sé jafnframt þakklátur fyrir að stuðningsmenn félagsins hafi staðið við að bakið á honum allan tímann. Chelsea keypti Torres frá Liverpool fyrir fimmtíu milljónir punda í janúar og það hefur gengið illa að skora hjá Spánverjanum. Torres hefur skorað í síðustu tveimur leikjum en í bæði skiptin hefur hann brugðist liðinu skömmu seinna í leikjunum, fyrst með að klúðra algjöru dauðafæri á móti Manchester United og svo með því að fá rautt spjald á móti Swansea. „Þegar þú stendur þig vel og skorar frá fyrsta degi þá er auðvelt fyrir stuðningsmennina að elska þig en fyrstu mánuðirnir hjá Chelsea hafa verið mjög erfiðir," sagði Fernando Torres í viðtali á Chelsea TV. „Ég hef samt alltaf fundið fyrir stuðningi frá fylgismönnum félagsins og ekki bara þegar hlutirnir gengu upp hjá mér. Það er gaman að vera byrjaður að skora fyrir þá. Þessi stuðningur hefur heillað mig frá fyrsta degi," sagði Torres en hann fékk rautt spjald fyrir tveggja fóta tæklingu á Mark Gower, leikmann Swansea. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ rautt spjald í ensku úrvalsdeildinni og það verður vonandi það síðasta líka. Ég er mjög vonsvikinn því liðið þurfti að spila með tíu menn í langan tíma," sagði Torres en hann verður í leikbanni í næstu þremur deildarleikjum Chelsea sem er á móti Bolton Wanderers, Everton og Queens Park Rangers.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira