Fótbolti

Töpuð stig gegn Anderlecht reyndust Arsenal dýr

Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal. vísir/getty
Arsenal vann öruggan sigur á Galatasaray í gær og komst áfram í Meistaradeildinni en varð að sætta sig við annað sætið í sínum riðli.

Liðið fékk jafnmörg stig og Dortmund en var með mun lélegra markahlutfall. Arsenal fær því mjög erfiðari andstæðing en Dortmund í næstu umferð.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sá eftir töpuðum stigum eftir leik í gær en liðið gerði meðal annars jafntefli við Anderlecht á heimavelli í riðlakeppninni.

„Við grátum þessi stig sem töpuðust gegn Anderlecht en annars stóðum við okkur nokkuð vel," sagði Wenger.

„Þessi frammistaða var því miður ekki nógu góð til þess að vinna riðilinn en það var engu að síður mikilvægt að komast áfram í keppninni."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×