Glamour

Topshop hefur sölu á brúðarkjólum

Ritstjórn skrifar
Línan mun fara í sölu í apríl.
Línan mun fara í sölu í apríl.
Breski fatarisinn Topshop mun hefja sölu á brúðarkjólum í apríl. Alls verða fimm kjólar í línunni sjálfri og munu kosta frá 85 pundum. Nánari smáatriði eru ekki enn kunn en þetta er haft eftir staðfestum heimildum tímaritsins Elle.  



Það er afar hentugt að línan verði sett í sölu í tæka tíð fyrir sumarið enda er það sú árstíð sem flestir ganga í það heilaga. Einnig er gott verð á kjólunum eitthvað sem tilvonandi brúðir munu fagna enda geta brúðarkjólar oft verið stór útgjaldaliður í brúðkaupum.






×