Íslenski boltinn

Toppliðið burstaði Magna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jóhannes Karl er að gera góða hluti með ÍA.
Jóhannes Karl er að gera góða hluti með ÍA. vísir/anton
Skagamenn burstuðu Magna í Inkasso-deild karla í kvöld en lokatölur urðu 5-0 í viðureign liðanna á Akranesi í kvöld.

Albert Hafsteinsson er kominn á völlinn aftur eftir meiðsli og hann skoraði fyrsta markið á 16. mínútu leiksins.

Hann lagði svo upp næsta mark fyrir Bjarka Stein Bjarkason þremur mínútum síðar en skömmu fyrir leikhlé bætti Steinar Þorsteinsson við þriðja markinu.

Þórður Þorsteinn Þórðarson skoraði svo fjórða markið úr vítaspyrnu á 72. mínútu og Albert fullkomnaði frábæran leik sinn fjórum mínútum síðar. Hann skoraði þá sitt annað mark og fimmta mark ÍA.

Skagamenn eru því á toppi Inkasso-deildarinnar með 20 stig en HK er í öðru sætinu, fjórum stigum frá ÍA. Magnamenn eru í vandræðum á botni deildarinnar með einungis þrjú stig.

Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×