Körfubolti

Töp hjá okkar mönnum í Frakklandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Martin í landsleik.
Martin í landsleik. vísir/getty
Landsliðsmennirnir Martin Hermannsson og Haukur Helgi Pálsson fara báðir með tap á bakinu inn í helgina í franska boltanum.

Martin skoraði tíu stig fyrir lið sitt, Chålons-Reims, er það tapaði, 86-61, fyrir Dijon.

Haukur Helgi skoraði fjögur stig fyrir Cholet sem tapaði, 73-62, fyrir Le Portel.

Lið Martins er í þriðja neðsta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar en lið Hauks er í ellefta sæti af átján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×