Töp hjá bæði Helga og Loga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2011 19:00 Logi Gunnarsson. Mynd/Solna Vikings
Íslendingaliðin 08 Stockholm HR og Solna Vikings töpuðu bæði í kvöld í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR voru búnir að vinna sex leiki í röð og áttu möguleika á því að komast upp í annað sæti deildarinnar. Loga Gunnarssyni og félögum í Solna Vikings liðinu hefur gengið illa á útivelli í vetur og það breyttist ekki á móti toppliði Borås Basket. Helgi Már Magnússon var með 14 stig á 24 mínútum þegar 08 Stockholm HR tapaði 75-79 á heimavelli á móti Södertälje Kings en þetta var fyrsta tap liðsins síðan 25. nóvember þegar þeir töpuðu með einu stigi á móti Jämtland Basket. Helgi Már var líka með 4 fráköst og 1 varið skot en hitti aðeins úr 1 af 5 vítum sínum. 08 Stockholm HR var fjórum stigum undir eftir fyrsta leikhluta (13-17) og sex stigum undir í hálfleik (32-38) en það var slæm byrjun á seinni hálfleik sem reyndist þeim dýrkeypt. Södertälje vann fyrstu sex mínútur þriðja leikhlutans 18-5 og komst 19 stigum yfir. 08-liðið vann hægt og rólega upp muninn á lokakaflanum og það munaði aðeins tveimur stigum á liðunum þegar mínúta var eftir. Södertälje tókst hinsvegar að halda út og tryggja sér sigur. Logi Gunnarsson var með 15 stig og 3 stoðsendingar á 33 mínútum þegar Solna Vikings tapaði 118-99 á útivelli á móti toppliði Borås Basket en þetta var sjöunda tap Solna í átta útileikjum á þessu tímabili. Borås Basket var með frumkvæðið allan leikinn, var níu stigum yfir í hálfleik og með tólf stiga forskot fyrir lokaleikhlutann. Logi hitti úr 5 af 15 skotum sínum í leiknum og var einnig með 2 fráköst og 2 stolna bolta.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Fleiri fréttir „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni Sjá meira