Handbolti

Töp hjá Aðalsteini og Fannari

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Aðalsteinn Eyjólfsson
Aðalsteinn Eyjólfsson vísir
Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í þýska liðinu Erlangen þurftu að sætta sig við tap gegn Göppingen í Bundesligunni í handbolta í kvöld.

Leikurinn var mjög jafn og var sigurmarkið skorað aðeins 30 sekúndum fyrir leikslok.

Erlangen hafði verið með yfirhöndina framan af í seinni hálfleik en náði þó aldrei afgerandi forystu og var jafnt á 58. mínútu.

Erlangen er í baráttunni í neðri hluta deildarinnar, er sem setur í 13. sæti með 16 stig. Sex stig eru niður í fallsæti.

Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 3 mörk í 23-27 tapi Hamm-Westfalen geng Rhein Vikings í 1. deildinni í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×