Bílar

Top Gear USA hætt

Finnur Thorlacius skrifar
Rutledge Wood, Tanner Foust og Adam Ferrara í Top Gear USA.
Rutledge Wood, Tanner Foust og Adam Ferrara í Top Gear USA.
Annað kvöld verður síðasti þáttur Top Gear USA sýndur, að minnsta kosti í bili. Það var Rutledge Wood, einn þáttastjórnenda í Top Gear USA sem tilkynnti þetta á Instagram.

Hann hefur ásamt Tanner Foust og Adam Ferrara stjórnað þáttunum síðastliðin ár. Í tilkynningu sinni sagði hann að hann vonaðist eftir því að þráðurinn verði einhverntíma tekinn upp að nýju þar vestra, en nú væri komið að leiðarlokum að sinni.

Óhætt er að segja að Top Gear USA hafi aldrei náð sömu hæðum og breska útgáfa þáttarins, en þar eru einnig blikur á lofti í höndum nýrra stjórnenda og hefur áhorf á þættina nú í Bretlandi náð nýjum lægðum. Það skildi þó aldrei verða að Top Gear þættirnir beggja megin hafs yrðu aflagðir?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×