Bílar

Top Gear þríeykið á Amazon Prime

Finnur Thorlacius skrifar
Top Gear þríeykið.
Top Gear þríeykið.
Þeir Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May sem stýrðu lengi Top Gear þáttunum á BBC hafa nú fundið nýjan vinnuveitanda.

Þeir munu framleiða bílaþætti fyrir Amazon Prime sem selur áskrifendum sínum aðgang að bóka-, sjónvarps-, tónlistar-, tölvuleikja- og bókaefni. Framtíð þríeykisins hefur verið óljós frá því að Jeremy Clarkson var rekinn frá bresku sjónvarpsstöðinni fyrir ofboldisfulla hegðun.

Hinir tveir samstarfsmenn hans ákváðu í kjölfarið að þiggja ekki áframhaldandi störf hjá BBC og vildu fylgja Jeremy við áframhaldandi framleiðslu bílaþátta á öðrum vettvangi og nú er ljóst hvar það verður.

Tilvonandi bílaþáttur þeirra Top Gear manna hefur ekki enn fengið nafn en munu sýningar á þáttum þeirra hefjast á næsta ári. 






×