Innlent

Tónskólar fá styrk vegna veikinda

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Takti er haldið í tónskólum með aukagreiðslu.
Takti er haldið í tónskólum með aukagreiðslu. Fréttablaðið/GVA
Tónskóli Eddu Borg og Tónskóli Hörpu hafa fengið samþykktar beiðnir sínar til Reykjavíkurborgar um framlag vegna langtímaveikinda kennara og stjórnenda.

„Reykjavíkurborg telur sér ekki skylt með samþykki þessarar tillögu að taka þátt í þessum kostnaði tónlistarskólanna sem er umfram umsamin framlög,“ undirstrikaði borgarráð. Framlagið er samtals ríflega 1,7 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×